Sigurbjörg er nýtískulegt og glæsilegt skip
Sigurbjörg ÁR kemur með afla til hafnar í Vestmannaeyjum.

Sigurbjörg ÁR, nýtt bolfiskskip Ísfélagsins kom til Hafnarfjarðar í lok ágúst. Sigurbjörg var smíðuð í Tyrklandi og búin öllu því nýjasta í tækja- og vélbúnaði. Sigurbjörg landaði í fyrsta skipti í Vestmannaeyjum föstudaginn 4. október. Er hún á allan hið glæsilegasta skip og margar nýjungar um borð sem létta áhöfninni störfin og eykur öryggi hennar. Er hún stórt stökk inn í framtíðina.

Mikil sjálfvirkni og öflugur búnaður

Sigurbjörg ÁR er smíðuð hjá Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul .

Mest lengd 48,10 m, skráð lengd 44.43 m.

Aðalvél MAN 6L 27 /38  1795 kW @ 800 sn / mín.

Skrúfugír er Rentjes SVAL 900 -33, gírhlutfall 6,955:1.

Skrúfan er frá MAN, fjögurra blaða , 3800 mm í þvermál.

Ásrafall 1500 kW.

Hjálparvélar eru tvær : MAN / Lindenberg 500 kW 1800 sn / mín.

Bógskrúfa : Brunvoll 340 kW þvermál 1225 mm.

Spilbúnaður kemur allur frá Spánska framleiðandanum Ibercisa og samanstendur af  4 togvindum, 3 gildavindum, 6 grandaravindum, tveimur pokavindum, 8 bakstroffuspilum, 2 akkerisspilum ásamt nokkrum fleiri hjálparvindum .

Togvindustjórnun er frá Scantrol.

Dekk krani : Gurdesan .

Vinnslubúnaður er frá Klaka hf. og í skipinu er einnig lestarbúnaður frá Klaka en búnaður sem setur afla í lest og landar honum er algerlega sjálfvirkur

Kælibúnaður kemur frá Kælismiðjunni Frost og samanstendur af lestarkælingu , kælingu á afla í körum á vinnsluþilfari þar sem kældum sjó er hringrásað til að ná sem bestir kælingu aflans áður en hann fer niður í lest  Kerfið framleiðir svo krapa sem dælt er í fiskikör áður en þau fara að lestinni .

Siglingatæki koma öll frá Simberg  en aflanemakerfi er frá Marport.

Nýjustu fréttir

Bjargið fær rausnarlega gjöf
Loðnufrysting í fullum gangi
Emil skoraði í sigri Íslands á Eistum
Fjórtán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Líflegur laugardagsmorgunn – fullfermi og loðnuvinnsla í fullum gangi
Sækist eftir 3. sæti
Íris kveður H-listann með þakklæti
Íris ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.