Síminn stefnir á að byggja upp og loka 4G langdræga hringnum í kringum landið á næstu átján mánuðum. 3G sjósambandið er nær óslitið um strandlengjuna og hefur breytt fjarskiptum sjómanna svo um munar. Með 4G verður netsambandið enn öflugra. �??Viðskiptavinir með sjósamband hjá Símanum sitja einir að 3G langdrægu kerfi fyrirtækisins,�?? segir Orri Hauksson, forstjóri Símans. �??Við hjá Símanum vitum að fjarskipti eru eitt lykilatriða þess að stunda hátækniveiðar og vinnslu. Með 4G verður netsambandið enn betra. �?að gefur ekki aðeins tækifæri í rekstri útgerðarfélaga heldur getur bætt lífsgæði sjómanna frekar. Hásetar hafa til dæmis getað stundað fjarnám um borð í skipum vegna síbatnandi fjarskipta.�??
4G sendir á Bolafjalli fyrir vestan er fyrstur á dagskrá. Síðan verður byggt jafnt og þétt upp þar til takmarkinu er náð.
Síminn hefur í vel rúmt ár byggt upp 4G kerfið sitt sem nær til 82,5% landsmanna. Nú síðast voru settir upp sendar í �?orlákshöfn og á Húsavík. Allir 4G sendar Símans ná nú 150 Mbps hraða, sem er ríflega þrefalt meiri hraði en sá mesti á 3G.