Sjúkrabíll fimm mínútur á vettvang
Yfirmaður sjúkraflutninga í Vestmannaeyjum segir það rangt að óeðlilega langur tími hafi liðið þar til sjúkrabíll kom á vettvang þegar tveimur piltum var bjargað í sundlauginni í Eyjum á laugardag. �?etta kemur fram á R�?V.is.
�??Aðstandandi piltanna sagði í viðtali við Pressuna að sjúkrabíll hafi komið á vettvang 15 mínútum eftir að slysið varð. Styrmir Sigurðarsson sjúkraflutningamaður hefur komið athugasemd á framfæri við ristjóra Pressunnar vegna umfjöllunarinnar. Hann segir að samkvæmt gögnum Neyðarlínunnar hafi útkall borist með SMS-skeyti klukkan 11:02, fimm mínútum síðar hafi sjúkrabíll verið kominn á vettvang.
Styrmir segir það sjaldan gerast að bjarga þurfi tveimur einstaklingum úr sundlaug í einu. Réttum viðbrögðum starfsmanna laugarinnar megi þakka hversu vel fór, en þeir hófu strax hjartahnoð eftir að þeir björguðu piltunum af botni dýpri enda laugarinnar,�?? segir í fréttinni.

Nýjustu fréttir

Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.