Skipasmíðastöðin ber kostnað af viðgerð Sigurðar VE
Sigurður VE er á heimleið eftir þriggja mánaða viðgerð í Noregi. Siglingin hefur gengið hægt vegna veðurs eins og sjá má í myndbandi sem birt var á Eyjafréttum í gærkvöld. Skipið var smíðað í Tyrklandi og ber skipasmíðastöðin þar í landi kostnað af viðgerðinni. Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins, segir að bilun hafi komið upp í spilkerfi skipsins. Frágangur á lögnum var ekki fullnægjandi. �??�?etta er alfarið ábyrgðarmál sem snýr að skipasmíðastöðinni,�?? segir Eyþór í samtali við Eyjafréttir.is.
Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélagsins, segir í samtali við kvotinn.is að skipasmíðastöðin greiði fyrir úrbæturnar enda eigi hún að skila nýju skipi með allan búnað í lagi. �??�?að var hins vegar afar bagalegt að geta ekki beitt nýju skipi við veiðarnar í sumar og haust. Skipið fór utan áður en makrílvertíðinni lauk. Við náðum þó kvótanum í makrílnum, norsk-íslensku síldinni og íslensku sumargotssíldinni,�?? segir Stefán.
Stefán segir að loðnan skipti félagið mestu máli og þar muni Sigurður VE koma að góðum notum. �?ví miður sé upphafskvótinn afskaplega lítill, ríflega 100.000 tonn og af því komi aðeins um 24.000 tonn í hlut Ísfélagsins. Hann segist vonast til þess að kvótinn verði aukinn, enda hafi náðst góð mæling á loðnuna í fyrra, þó svo það hafi ekki tekist í ár. Mælingin þá bendi til að loðnan standi nokkuð vel.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.