Skiptir ekki máli hvenær ævinnar fólk byrjar í golfi
Golfklúbbur Vestmannaeyja er einn af elstu golfklúbbum landsins og í gegnum marga áratugi hefur golfvöllurinn vakið athygli fyrir mikla náttúrufegurð. Athygli þessi er alltaf að færast meira og meira út fyrir landsteinana og í dag eru erlendir kylfingar farnir að koma í meira mæli til Íslands til að leika golf. Á undanförnum árum hefur starfsemi Golfklúbbs Vestmannaeyja verið að vaxa og fjöldi kylfinga heimsækja völlinn á ári hverju auk þess sem Eyjamenn eru ansi margir farnir að stunda golf af miklum krafti. Einar Gunnarsson PGA kennari er golfkennari GV. Einar fluttist til Vestmannaeyja ásamt fjölskyldu sinni vegna golfkennarastarfsins og er hann afar ánægður að starfa við golfklúbb sem hefur slíka sögu og slíkan völl sem Vestmanneyjar hefur að geyma. Einar segist kunna vel við samfélagið hér í Eyjum og líkar honum mjög vel við fólkið hér sem hann segir vera ansi duglegt og áhugasamt í golfinu. Fjöldinn allur af kylfingum er að æfa undir handleiðslu Einars og golfið í Vestmanneyjum er orðið að heilsársíþrótt fyrir meira en hundrað Eyjamenn. Allur aðbúnaður hjá GV til vetrarstarfs hefur batnað mjög á undanförnum árum sem gefur tækifæri á að stunda golfæfingar allt árið um kring. Við forvitnuðumst aðeins um starfsemi klúbbsins og tókum golfkennarann tali.
Geta allir stundað golf?
Golf er í raun fyrir alla aldurshópa og það besta við íþróttina er að menn og konur geta bætt sig frá einum tíma til annars óháð aldri. �?að sem gerir íþróttina líka frábæra er að í raun skiptir ekki máli hvenær ævinnar fólk byrjar í golfi, ég hef verið með 79 ára gamlan kylfing í tíma hjá mér sem byrjaði 68 ára í golfi og viðkomandi spilar golf alla daga ársins ef veður leyfir. Reyndar hef ég einnig fengið 89 ára gamlan kylfing í tíma til mín sem vildi aðeins lengja sig í teighöggunum…og það tókst :-).
Börn sem læra golf hafa það umfram þá sem byrja seinna að eiga auðveldara með vissar grunnhreyfingar og það merkilega er að þau virðast búa yfir þessum grunni alla ævi, svipað og að læra að hjóla.
Einn af kostum golfíþróttarinnar er að hver og einn getur valið sér í raun hvernig íþrótt hann stundar. Sumir vilja verða keppniskylfingar, einhverjir vilja hafa íþróttina sem góða útiveru og hreyfingu, enn aðrir velja golf sem fjölskylduíþrótt og svona mætti lengi telja. �?að sem allir þessir hópar eiga sammerkt er að finnast gaman í golfi og þá er björninn unninn.
Hvað er í boði fyrir þá sem vilja stunda golf?
Hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja er mikið í boði fyrir kylfinga sem vilja æfa golf. Við erum við æfingar bæði um sumar og vetur fyrir öll börn á grunnskólaaldri. �?eir unglingar sem vilja hafa golf sem aðalíþrótt og æfa vel fyrir keppnisgolf eru þátttakendur í svokölluðum afrekshópi. Afrekshópur æfir og keppir meira en aðrir unglingar og einnig eru þeir þátttakendur í akademíu skólanna og GV. Golfklúbbur Vestmannaeyja gerði nýverið samninga við bæði GRV og FÍV um samstarf sem byggir á íþróttaakademíu skólanna.
Fyrir fullorðna eru haldin byrjenda-námskeið á hverju vori sem hafa verið mikið sótt undanfarin ár og vonandi verður svo áfram. Fullorðnir kylfingar hjá GV geta einnig stundað vetraræfingar frá janúar til maí undir handleiðslu golfkennara og að sjálfsögðu nýta fullorðnir sér einnig æfingar og kennslu yfir sumartímann.
Fyrir þá sem vilja byrja að stunda golf, hvert eiga þeir að snúa sér?
�?eir sem vilja byrja í golfi einfaldlega hafa samband við Einar Gunnarsson golfkennara GV og spjalla við hann um hvaða leiðir séu bestar til að byrja. Sumir vilja koma í einka- eða hóptíma en flestir koma á byrjendanámskeið sem eru í lok maí og í byrjun júní. Byrjendurm sem sækja slíkt námskeið býðst að skrá sig sem klúbbmeðlimi að námskeiði loknu og fá þá námskeiðsgjaldið frádregið nýliðagjaldi klúbbsins. Að jafnaði einu sinni í viku yfir sumarið fer Einar með byrjendahópinn út á völl og leiðir þá í gegnum golfið. Margir nýta sér þessi námskeið og fyrr en varir er byrjandinn farinn að skella sér í góðra vina hóp einn golfhring eða svo.
Hvað eru margir iðkendur hjá GV?
Hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja eru um 60 börn sem æfa golf yfir sumartímann og alltaf er að aukast fjöldinn sem sækir vetraræfingar. Á vetraræfingum fullorðina eru á milli 60 og 70 sem æfa reglulega.
Hvernig fer starfið fram á veturna?
Börnum og unglingum GV býðst að jafnaði tveir æfingatímar á viku á veturna fyrir hvern aldurshóp en afrekshópur æfir mun oftar. Hjá fullorðnum eru hópar sem æfa einu sinn í viku í frá janúar til maí auk þess sem þátttakendur geta sótt tíma í golftengdri líkamsrækt sem starfrækt er í Týsheimilinu í samstarfi við Dugnað.
Hvaða útbúnað þarf byrjandi að eiga?
�?eir sem eru að byrja í golfi og koma á byrjendanámskeið þurfa ekki endilega að eiga golfsett. Við lánum allan útbúnað en margir koma þó með sínar kylfur á námskeiðin. Í upphafi ferils hvers kylfings nægir að eiga aðeins nokkrar kylfur en fljótlega er þó gott að koma sér upp fullu golfsetti. Eins og með margar aðrar íþróttir er alls kyns útbúnaður til en verð á golfkylfum er mjög mismunandi og er mikilvægt að finna kylfur við sitt hæfi. Varðandi fatnað þá skiptir mestu máli að eiga góðan útivistarfatnað og vatnshelda skó.
Hvað er framundan hjá GV?
Framundan er gríðarlega spennandi tími hjá Golfklúbbi Vestmanneyja bæði hvað varðar félagsstarfið og einnig stóra viðburði í mótahaldi. Aðstaða okkar er alltaf að batna og olli það straumhvörfum fyrir allt starf í klúbbnum að taka æfingaskýlið í notkun. Um þessar mundir er verið að útbúa púttflöt á efri hæð golfskálans sem mun nýtast mjög vel í vetrarstarfinu og einnig verður fljótlega tekið í notkun golfgreiningartæki af fullkomnustu gerð sem mun nýtast mjög vel í allri golfkennslu en einnig er hægt að nota það sem fullkominn golfhermi fyrir félagsmenn.
Mörg stór og flott mót eru orðin fastur liður í starfi GV á hverju sumri og verður engin breyting þar á næstunni. Til viðbótar hefur Golfsamband Íslands ákveðið að Íslandsmótið í holukeppni fari fram á Vestmannaeyjavelli í sumar og sjálft Íslandsmótið í golfi sem er stærsta mót sem haldið er hér á landi fer fram á Vestmannaeyjavelli á 80 ára afmælisári Golfklúbbs Vestmanneyja, sumarið 2018. Líta má á þessi mót sem stóra viðurkenningu á Vestmannaeyjavöll en þess má geta að völlurinn var valinn 34. besti golfvöllur (af meira en 1000 völlum) í Skandinavíu af hinu virta golftímariti Golf Digest. �?ví má segja að völlurinn okkar sé alger perla sem vekur athygli bæði innan lands sem utan.

Nýjustu fréttir

Eyjakonur töpuðu heima gegn Breiðablik
Þétt setinn skóli þegar haustönn hefst
Heimaklettur í allri sinni dýrð – en gönguleiðin bíður enn úrbóta
Fjögur lið frá ÍBV tóku þátt á Norðurálsmótinu
Stórleikur á Hásteinsvelli í kvöld
Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.