Karlalið ÍBV í knattspyrnu er þessa dagana í æfingaferð á Spáni. Ferðin er liður í undirbúningi liðsins fyrir átökin í sumar en Íslandsmótið hefst eftir mánuð. Víðir �?orvarðarson, sóknartengiliðurinn knái skrifaði pistil á stuðningsmannasíðu ÍBV á facebook. Í pistlinum tekur Víðir saman helstu atriði fyrsta sólarhrings ferðarinnar, þar sem m.a. er komið inn á aftansöng í þotunni, ljósmyndafyrirsætu, ógeðslegar landsliðsnærbuxur og sólbruna eftir þrumuveður. Pistilinn má lesa hér að neðan:
Sæll og blessuð öllsömul.
�?g var fenginn til að skrifa pistla daglega/annan hvern dag meðan við erum hér úti á spáni í æfingaferð og “pósta” þeim hér inná stuðningsmannaspjallið svo þið getið fylgst með okkur. �?g biðst fyrirfram afsökunnar á öllum stafsetningarvillum sem verða í þessum pistlum, stafsetning er ekki mín sterkasta hlið. Einnig get ég ekki verið að segja frá öllu sem gerist í svona æfingaferðum enda er það ekki internethæft eins og t.d. því að Arnar Bragi gerði fátt annað en að prumpa í flugvélinni út svo fólk í 3-4 röðum fyrir aftan hann var byrjað að kvarta eða ógeðslegu nærbuxunum hans Gauja sem hann fékk þegar hann æfði með landsliðinu.
þá yrðu menn bara fúlir og það yrði slæmt fyrir móralinn…
Fimmtudagur 03.04.2014
Í gær má segja að Yngvi hafi sett standardinn á ferðinni strax í byrjun þegar hann hendi í eina svakalegustu mynd sé ég hef séð og kom það engum á óvart að hún braut 200 like-a múrinn ( 227 like þegar þetta er skrifað) ef þið hafið ekki séð hana nú þegar mæli ég með því að tjékka á henni. því næst var haldið í leifstöð og flogið til spánar. Við lentum um miðnætti og vorum komnir á hótelið um eitt leitið svangir og þreyttir fórum við í leit að mat og gengum að því virtist í 100 klukkutíma (20mín í raun) til að finna eitthvað að borða. eina sem við fundum var bensínstöð sem hafði líklega aldrei selt jafnvel og einmitt þarna, um 2 leytið á aðfaranótt fimmtudags. þreyttir og pirraðir lögðust menn á koddan. en viti menn þegar sú gula mætti í morgunnsárið voru menn fljótir að jafna sig á misförum gærdagsins. Við æfðum í morgunn í sól og blíðu samt var Deano sá eini sem fór úr að ofan, enda ekki margir sem hafa sjálfstraust í það að standa ber að ofan við hliðina á honum… allavega ekki ég. Á morgun æfingunni var skipt í þrjú lið (kjúklingar, menn á besta aldri og eldgamlir) og spilað “winner stays” eða sigurvegari heldur velli. þar spila 2 lið á meðan þriðja liðið hvílir. skemmst frá því að segja að menn á besta aldri unnu alla leikina nokkuð sannfærandi enda eigilega ósanngjarnt hversu gott það lið var. í því liði voru ég, Eiður, Brynjar, Bragi, Bjarni og Dominic. Eftir æfingu var rigning, þrumur og eldingar fram að næstu æfingu svo menn héldu sig inni milli æfinga samt tókst vini mínum KYNGva á eitthvern ótrúlegan hátt að brenna. en eins og hann sagði þá fer sólin misvel í okkur og tók hann abel sem dæmi sér til stuðnings, hann er ekki mikið að brenna hérna úti.
seinni æfingin var meira og minna taktík og ekki mikið spenna í kringum hana.
Hjálmar Jónsson bað mig að setja inn myndir með pistlunum ekki veit ég afhverju, það er reyndar mjög gott lag en ég næ bara ekki alveg tengingunni við ferðina.
p.s. þegar þetta er skrifað eru eflaust allir stjarfir yfir biggest looser svo ég segi bara áfram Jóhanna �?�#�??TEAMJóhanna�?�