Stærsta Shellmót frá upphafi
Stærsta Shellmót frá upphafi hófst í morgun í Eyjum. Alls eru þátttakendur nú 1250 talsins eða um 100 fleiri en hafa áður verið, eftir því að fram kemur hjá Einari Friðþjófssyni, mótsstjóra. �??�?etta er fjölmennasta mótið. Alls koma þátttakendur frá 33 félögum og eru 104 lið í mótinu. �?að er ljóst að við getum ekki stækkað mótið umfram þetta þar sem öll gistipláss eru nýtt í ár, Barnaskóli, Hamarsskóli, Framhaldsskóli, Kiwanis, húsnæði Rauða kross Íslands og fleiri staðir. �?að er sofið í öllum skúmaskotum eyjunnar,�?? sagði Einar og hló.
Hann sagði mikla ásókn í að komast á Shellmótið. �??�?au félög sem koma einu sinni, vilja koma aftur. �?au segja öll að þetta sé mótið með stóru M-i. T.d. kom Höttur fyrst hingað fyrir tveimur árum eftir að hafa tekið þátt í öðrum mótum fram að því. Eftir að þeir komu hingað, þá vilja þeir hvergi annað fara og hafa dregið Fjarðarbyggð með sér að austan. Annars erum við með félög frá öllum hornum landsins og nú í fyrsta sinn er félag frá Vestfjörðum því BÍ/Bolungarvík tekur nú þátt í fyrsta sinn, sérstaklega ánægjulegt að fá þá til okkar. Svo má búast við öðru eins af foreldrum og forráðamönnum enda eru öll gistirými í Eyjum fullbókuð og tjaldsvæðin verða þéttsetin í dag,�?? sagði Einar en ekki er annað að sjá en að veðurguðirnir séu mótshöldurum frekar hliðhollir, þótt einhver væta sé í kortunum.
�?au lið sem byrjuðu að spila í morgun mættu í morgunmat klukkan 7:00 en fyrstu leikirnir byrjuðu 8:45. Spilað verður fram á kvöld en þá tekur við skrúðganga og setning. �??Björn Thoroddsen, flugmaður gat því miður ekki verið með okkur á listflugvélinni sinni í fyrra en hann mætir í ár. Vélin hans er biluð en hann fékk bara lánaða vél til að geta verið með okkur. Svo verður væntanlega mikið fjör fram á laugardag þegar mótinu lýkur með úrslitaleikjum og lokahófi,�?? sagði Einar.
�?kumann fari varlega
Lögreglan í Vestmannaeyjum hvetur ökumenn bifreiða að fara sérstaklega varlega á meðan Shellmótið fer fram, ekki síst í kringum vellina og gististaði mótsins, sem eru reyndar um allan bæ. Mikið af fólki er á ferðinni og stór hluti þeirra ungir drengir sem eiga það til að gleyma sér í hita leiksins.

Nýjustu fréttir

Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.