�?að var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni vegna hinna ýmsu verkefna sem upp komu. Rólegt var hins vegar um helgina í kringum öldurhús bæjarins og spurning hvort fólk sé að safna kröftum fyrir komandi helgi.
Aðfaranótt 22. júlí sl. var lögreglu tilkynnt um rúðubrot hjá Aska Hostel en þarna hafði rúða við hliðina á aðalinngangi verið brotin, líklega með því að sparkað í hana. Leikur grunur á hver þarna var að verki en hann hefur neitað sök. Lögreglan hvetur þá sem einhverjar upplýsingar hafa varðandi þetta umrædda rúðubrot að hafa samband.
Að morgni 23. júlí sl. var lögreglu tilkynnt um að farið hafi verið inn í íbúð að Áshamri 26 og þaðan stolið fartölvu og lyfjum. Grunur beindist fljótlega að ákveðnum aðila og við húsleit hjá þessum aðila síðdegis daginn eftir fannst tölvan. Viðkomandi kvaðst hins vegar ekki hafa stolið tölvunni heldur hafi hann fengið hana upp í skuld hjá ónefndum manni. Eigandinn var mjög þakklátur lögreglu fyrir að hafa endurheimt tölvuna.
Einn ökumaður var stöðvaður í vikunni vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, auk þess sem hann hafði ekki réttindi til aksturs ökutækis. �?á var einn ökumaður sektaður fyrir ólöglega lagningu ökutækis síns.
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku en í báðum tilvikum var um minniháttar óhöpp að ræða og engin slys á fólki.
Lögreglan vill minna á að útivistareglurnar gilda jafnt á �?jóðhátíð sem aðra daga ársins og hvetur foreldra og forráðamenn barna að hafa í huga velferð og öryggi barna sinna.