Stefnum hærra saman
Vorið 2012 var hleypt af stokkunum þróunarverkefni, íþróttaakademíu við Grunnskóla Vestmannaeyja að fyrirmynd íþróttaakademíu Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyjabær og ÍBV-Íþróttafélag gerðu í kjölfarið með sér samstarfssamning vegna verkefnisins.
Hugmyndin með verkefninu var fyrst og fremst að bæta samskipti og auka samstarf GRV og ÍBV, efla forvarnir, draga úr brottfalli úr íþróttum á viðkvæmum aldri, efla áhuga, metnað og árangur nemenda í námi og íþróttum, fylgja skóla-, íþrótta- og æskulýðsstefnu sveitarfélagsins og auka þjónustu við afreksfólk.
Verkefnið felst í því að allir nemendur í 9. og 10. bekk með íþróttir sem valgrein hafa möguleika á því að ganga í íþróttaakademíuna. Nemendur undirrita lífsstílssamning sem felst í því að neyta engra vímuefna, leggja sig allan fram í sínu námi, vera öðrum fyrirmynd og hlýta ströngum mætingarreglum á æfingar og fyrirlestra. Nemendurnir mæta eldsnemma á æfingar, bæði tækni- og styrktaræfingar og sitja fyrirlestra sem nýtast þeim vel í íþróttum og námi.
�?etta verkefni er í stöðugri þróun og hefur skipulaginu m.a. verið breytt nokkuð til að draga úr álagi á nemendurnar. Með þessu fyrirkomulagi hefur samvinna GRV og ÍBV íþróttafélags aukist til muna og gagnkvæmur skilningur ríkir þar sem megináherslan er fyrst og fremst á námið en nemendum er gert kleift að sinna íþrótt sinni af fullum krafti.
Árangurinn hefur svo sannarlega ekki látið á sér standa, vímuefnaneysla í GRV og FÍV er með því minnsta sem mælist á landinu og dregið hefur úr reykingum. Frábær árangur í íþróttunum talar sínu máli, bikar- og Íslandsmeistaratitlar, landsliðsfólki fer fjölgandi o.s.frv. Allt byggir þetta auðvitað á miklum metnaði og öflugu starfi kennara skólanna, þjálfara ÍBV og síðast en alls ekki síst nemendanna sjálfra sem eru uppfullir af metnaði, samviskusemi og eru öflugar fyrirmyndir.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
skipar 6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.
Trausti Hjaltason
skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.