Stórsigur í fjörugum leik
ÍBV skellti FH þegar liðin áttust við í Pepsídeild kvenna á Hásteinsvelli í kvöld. Hávaðarok var þegar leikurinn fór fram og stóð vindurinn beint á annað markið. ÍBV byrjaði á móti vindi en var engu að síður sterkari aðilinn framan af. Shaneka Gordon kom ÍBV yfir á áttundu mínútu og tveimur mínútum síðar bætti fyrirliðinn, Kristín Erna Sigurlásdóttir við marki og kom ÍBV í 2:0. Eftir þetta skiptust liðin á að sækja og fengu bæði ágætis færi til að bæta við mörkum. Ekkert gerðist þó fyrr en undir lok fyrri hálfleiks þegar Kristín Erna bætti við þriðja marki ÍBV og staðan því 3:0 í hálfleik. Góður leikur hjá ÍBV gegn sterkum vindinum en Eyjaliðið nýtti hraða framherja sinna vel við þessar aðstæður.
Fátt markvert gerðist framan af í seinni hálfleik en ÍBV bætti svo við þremur mörkum á lokakafla leiksins. Fyrst fullkomnaði Kristín Erna þrennuna með ágætu marki, Nadia Lawrence bætti fimmta markinu við og aðeins mínútu síðar skoraði Ármey Valdimarsdóttir með skoti af löngu færi sem markvörður FH réði ekki við. 6:0 lokatölur því staðreynd en eins og áður sagði fékk FH nokkur ágætis færi til að skora en Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir, markvörður ÍBV átti stórleik og varði allt sem á markið kom.
Með sigrinum komst ÍBV upp fyrir FH, upp í sjöunda sæti en bæði lið eru með sex stig. ÍBV er hins vegar með mun betra markahlutfall.

Nýjustu fréttir

Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Óboðnir gestir undir yfirborðinu
Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.