Stórsigur hjá ÍBV
ÍBV tók á móti KA/�?ór í sjöttu umferð Olís deild­ar kvenna í hand­knatt­leik í Vest­manna­eyj­um í dag þar sem ÍBV vann stórsigur 32-20. Gestirnir frá Akureyri skoruðu fyrsta mark leiksins og jafnt var á öllum tölum þangað til í stöðunni 3-3 en þá komu fimm Eyjamörk í röð og þá skildu leiðir milli liðanna. ÍBV hreinlega stakk af og staðan í hálfleik var 20-7.
Í síðari hálfleik var það sama upp á teningnum, ÍBV var að spila vel og dreifði Hrafnhildur �?sk Skúladóttir, þjálfari ÍBV álaginu vel og fengu allir leikmenn að spila. Leiknum lauk með tólf marka sigri ÍBV 32-20.
ÍBV er á toppi deild­ar­inn­ar með 12 stig eft­ir sex um­ferðir.
Mörk ÍBV skoruðu þær; Drífa �?or­valds­dótt­ir 7, Greta Kavaliu­skaite 7, Ester �?skarsdóttir 5, Vera Lopes 4, Selma Rut Sigurbjörnsdóttir 3, Kristrún �?sk Hlynsdóttir 2, Ásta Björt Júlíusdóttir 1, Díana Dögg Magnúsdóttir 1 og Telma Amado 1.

Nýjustu fréttir

Áfall fyrir ÍBV – Amalia Frøland með slitið krossband
Meiri sandur í höfninni – dýpkun hefst í fyrramálið
Maí sól – Lag til ömmustelpurnar
Styrkir veittir til fjölbreyttra verkefna
Neyðarkall úr Eyjum
Sigmundur Davíð með opinn fund
Hæsti styrkurinn til Eyja
Dýptarmæling í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.