Stórsigur og ÍBV upp í fimmta sætið
ÍBV vann stórsigur á botnliði ÍA í dag en lokatölur urðu 5:0. Um leið sendu Eyjakonur Akranesliðið endanlega niður í 1. deild en ÍA á ekki lengur möguleika á að halda sæti sínu og fyrir leikinn voru möguleikarnir afskaplega litlir enda ÍA með aðeins eitt stig eftir 16 leiki. Sigur ÍBV hefði í raun getað orðið mun stærri enda fengu Eyjakonur fjölmörg færi sem ekki nýttust og áttu m.a. þrumuskot í stöng í síðari hálfleik. Staðan í hálfleik var 2:0 en mörk ÍBV gerðu þær Shaneka Gordon (2), �?órhildur �?lafsdóttir, Vesna Elísa Smiljkovic og Sóley Guðmundsdóttir. Með sigrinum lyfti ÍBV sér upp í fimmta sæti deildarinnar en liðið er nú með 24 stig eftir 16 leiki. Valur er með 22 stig eftir 15 leiki og Selfoss með 23 eftir 15 leiki.
Shaneka er nú í öðru sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar, með 11 mörk en mikil barátta er um silfurskóinn þar sem Harpa �?orsteinsdóttir er með mikla yfirburði í markaskorun í sumar, búin að skora 23 mörk. Eyjakonan Fanndís Friðriksdóttir er svo í þriðja sæti yfir markaskorara sumarsins, með 9 mörk í 14 leikjum en í kjölfar hennar eru svo fjórir leikmenn með 8 mörk, þar af þrjár úr Breiðabliki. �?ess má svo til gamans geta að bakvörðurinn Sóley skoraði sitt mark beint úr hornspyrnu.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.