Strandveiðifélag Íslands, félag um réttlæti í sjávarútvegi, var stofnað laugardaginn 5. mars sl. í gamla Stýrimannaskólanum að Öldugötu 23. Um 170 stofnfélagar höfðu skráð sig fyrir fundinn. Um 50 stofnfélagar mættu á fundinn og auk þess fylgdust um 60 félagsmenn með streymi af fundinum.
Gunnar Ingiberg Guðmundsson, skipstjóri, var kjörinn formaður félagsins og 9 manns kjörin í stjórn og varastjórn.
Tilgangur félagsins er að standa vörð um og berjast fyrir rétti almennings til handfæraveiða við Íslandsstrendur og koma í veg fyrir mismunun í lögum um fiskveiðistjórnun sem brýtur í bága við stjórnarskrá landsins sem er staðfest alþjóðlega og innanlands. Félagið vísar þessu til rökstuðnings í álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá 2007 og í niðurstöðu Hæstaréttar Íslands frá árinu 1998, sem kveður á um að fiskveiðistjórnarkerfið sé andstætt jafnréttisákvæðum stjórnarskrárinnar og ákvæðum um atvinnufrelsi.
Stofnfundur STÍ, samþykkti samhljóða eftirfarandi ályktun:
Ályktun:
Strandveiðifélags Íslands, skorar á íslensk stjórnvöld að hlúa að og efla strandveiðar við Ísland.Taka þarf stór skref til að uppfylla álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2007, þar sem kemur fram að íslensku lögin um stjórn fiskveiða brjóti í bága við 26. gr. Alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi um jafnrétti allra manna. Við skorum á löggjafa- og framkvæmdavaldið að taka einnig tillit til niðurstöðu Hæstaréttar Íslands frá 1998 þar sem kemur ótvírætt fram að fiskveiðistjórnunarkerfið eins og það er uppbyggt væri andstætt jafnréttisákvæðum stjórnarskrárinnar og ákvæðum um atvinnufrelsi.
Með aukinni umhverfisvitund eru neytendur um allan heim, tilbúnir til að greiða hærra verð fyrir umhverfisvænan og ferskan fisk. Öflugar handfæraveiðar myndu svara þessu ákalli neytenda og aukinni umhverfisvitund fyrirtækja.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.