Stundum þarf að leggja við hlustir
eftir Guðna Hjörleifsson
Gudni Hjoll Ads C
Guðni Hjörleifsson

Nú þegar fer að nálgast kosningar og virðast nokkrir flokkar ætla að stökkva á Miðflokksvagninn í innflytjendamálum. En þegar svo gerist er nauðsynlegt að skoða sögu flokksins í málaflokknum.  Miðflokkurinn er eini flokkurinn sem hefur staðið í lappirnar í þessum málaflokki síðustu ár. Málaflokkur sem er kominn í algjört strand og er nauðsynlegt að fara að snúa ofanaf þeim kostnaði sem er þar til staðar.  Kostnaður sem hefði sparast með því að leggja við hlustir og hlusta á tillögur og viðvaranir Miðflokksins síðustu ár.

Nú er mikill uppgangur í Eyjum og ber að hrósa bæjaryfirvöldum fyrir þeirra þátt í því. Bæjaryfirvöld sem hafa tekið höndum saman í því að berjast fyrir hagsmunum eyjunnar okkar. Í menntamálum hafa Eyjamenn tekið af skarið og ákveðið að gera eitthvað. Með tilkomu verkefnisins Kveikjum Neistann hefur verið stigið mikið framfaraskref svo eftir er tekið og fá börnin okkar og barnabörn að njóta afraksturssins.

Samgöngur Vestmannaeyja tóku miklum framförum með tilkomu Landeyjahafnar og nýjum Herjólfi. En betur má ef duga skal, frátafir hafa verið þónokkrar vegna veðurs undanfarið og augljóst er að nauðsynlegt er að fara þurfi í lagfæringar á höfninni svo hún virki eins og ætlast er til. Þá er nauðsynlegt að vera með aðila innan ríkisstjórnar sem hefur búið í Eyjum og veit hversu nauðsynlegar þessar samgöngur eru okkur Eyjamönnum.  Ég veit allavega hverjum ég treysti best í þessum málaflokki.

Karl Gauti lagði fram þingsályktunartillögu síðast þegar hann var á þingi um að klára rannsóknir á jarðlögum vegna jarðgangna. Því miður talaði hann fyrir daufum eyrum, rétt eins og Ægisdyr, sem barist hafa fyrir rannsóknum á jarðgöngum í mörg ár.  En nú er þetta málefni að komast á kortið aftur og þurfum við allar hendur á dekk eins og góður maður hefði orðað það, til að koma verkefninu alla leið og klára þessar rannsóknir. Þá fyrst verður hægt að fara í viðeigandi aðgerðir. Hvort sem það verði gerð jarðgangna eða endanleg lagfæring á Landeyjahöfn til framtíðar.

Ég treysti mínu fólki, Karli Gauta, Heiðbrá, Ólafi og Kristófer Mána til að berjast fyrir málefnum okkar Eyjamanna. Ég hef verið í góðu sambandi við þau öll, sem og forystu flokksins varðandi öll þessi málefni og mun halda því ótrauður áfram.

 

Setjum X við M!  – Miðflokkurinn stendur á sínu.

Kveðja Guðni Hjöll.

Nýjustu fréttir

Ekkert áframhaldandi flug
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.