Sunnlenskur Mormónasöfnuður stofnaður

Meðlimir í Mormónasöfnuðinum koma saman alla sunnudaga í um fjórar klukkustundir. �?�?að er vissulega ánægjulegt að vera loksins komin með aðstöðu á svæðinu og þurfa því ekki að sækja vikulegar samkomur til Reykjavíkur,�? segir Bárður.

�?Ef núverandi fjöldi meðlima helst í nokkra mánuði í viðbót munum við fá styrk frá höfuðstöðvum kirkjunnar í Salt Lake borginni í Bandaríkjunum til þess að eignast safnaðarhús á Selfossi. �?annig að núverandi aðstaða í félagsheimilinu er vonandi aðeins til bráðabyrgða þó að salurinn þar henti okkur ágætlega. Við bænastundir þarf nefnilega ekki annað en ræðupúlt og stóla. Veraldleg tákn í samkomum eru ekki notuð í mormónatrú, einu táknin eru líf meðlimanna sjálfra,�? segir Bárður en hann leiðir samkomurnar á Selfossi sem hófust fyrir um tveimur vikum.

Um þessar mundir eru um þrjátíu sunnlendingar virkir í söfnuðinum og hefur þeim fjölgað talsvert á síðastliðnum árum, segir Bárður. �?ví má að einhverju leiti þakka starfi tveggja erlendra trúboða kirkjunnar sem starfað hafa á Selfossi í liðlega ár. Gréta Sverrisdóttir, forstöðumaður Félagsmiðstöðvarinnar á Selfossi, er meðlimur í Mormónasöfnuðinum. Bárður segir hinsvegar að hún hafi ekki haft neina milligöngu um málið enda ekki eigandi hússins.

Sunnudagssamkomurnar byrja klukkan ellefu og eru öllum opnar.


Mynd: Mormónar á Selfossi – Um þrjátíu manns hafa mætt á samkomur Mormónasafnaðarins í Félagsmiðstöðinni á Selfossi síðastliðnar tvær vikur. Á myndinni hér að ofan er hluti safnaðarmeðlima. Bárður Árni Gunnarsson, forseti Mormónasafnaðarins á Suðurland, er lengst til vinstri í neðri röð og Gréta Sverrisdóttir, forstöðumaður Félagsmiðstöðvarinnar, þriðja frá hægri í efri röð.

Nýjustu fréttir

Jöfn kynjahlutföll hjá embætti Lögreglustjórans í Eyjum
F​jölluðu um stöðu dómsmáls gegn félaginu
Víglundur Þór Þorsteinsson læknir er látinn
Hvað er að vera Sjálfstæðismaður?
Af hverju er heita vatnið svona dýrt?
Samgöngur hafa ekki stoppað Miðflokkinn
Eru samgöngur að stoppa þingmenn okkar?
Nýtt tölublað Eyjafrétta komið út: Loðnan, kosningabaráttan og forsetaheimsókn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.