Kvennalið ÍBV í fótbolta tapaði 2-0 gegn Stjörnunni í sjöundu umferð Bestu deildar kvenna á Samsung vellinum í Garðabænum í dag. Eyjakonur voru án margra lykilleikmanna en Allison Lowrey, Helena Hekla Hlynsdóttir, Embla Harðardóttir og Fridrikka Maria Clementsen eru allar á meiðslalistanum. Þá var Olga Sevcova í leikbanni.
Stjörnukonur voru sterkari í fyrri hálfleik og gátu komist yfir eftir tíu mínútur þegar boltinn fór í höndina á fyrirliða ÍBV, Avery Vanderven, og þær uppskáru vítaspyrnu. Andrea Mist Pálsdóttir fór á punktinn en Guðný Geirsdóttir varði frábærlega frá henni og svo frákastið í kjölfarið. Guðný frábær í markinu hjá ÍBV í dag. Vikorija Zaicikova fékk lang besta færi Eyjakvenna í fyrri hálfleik þegar hún náði skoti af stuttu færi en Bridgette Nicole Skiba, markvörður Stjörnunnar, varði frá henni. Staðan 0-0 í hálfleik.
Stjörnukonur komust í 1-0 á upphafsmínútum síðari hálfleiks þegar Fanney Lísa Jóhannesdóttir skoraði eftir frábæran undirbúning Úlfu Dísar Kreye Úlfarsdóttur. Eyjakonur sóttu í sig veðrið eftir mark Stjörnunnar og komust í nokkrar álitlegar stöður til að jafna leikinn. Það voru hins vegar Stjörnukonur sem juku forystu sína þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma þegar Snædís María Jörundsdóttir skoraði eftir undirbúning Úlfu Dísar og kom þeim í 2-0 og voru það lokatölur leiksins.
Eyjakonur eru eftir leikinn áfram í þriðja sæti deildarinnar með 13 stig, þremur stigum á eftir FH í 2. sæti. Stjarnan situr í fimmta sæti með 11 stig.
Stjarnan 2 – 0 ÍBV
1-0 Fanney Lísa Jóhannesdóttir (‘48 )
2-0 Snædís María Jörundsadóttir (’85 )
Úrslit úr sjöundu umferð Bestu deildar kvenna:
FH 6 – 2 Fram
Þór/KA 4 – 6 Víkingur R.
Gri/Nja 0 – 5 Breiðablik
Valur 0 – 1 Þróttur R.