�?á þarf að loka póstinum
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað í síðasta mánuði upp úrskurð í máli Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar, STEF gegn fjarskiptafyrirtækjunum Vodafone og Hringdu. Í dómnum er lagt fyrir Sýslumanninn í Reykjavík að leggja lögbann á að umrædd fjarskiptafyrirtæki geti veitt viðskiptamönnum sínum aðgang að vefsíðum eins og Deildu.net og Piratebay og hafa fyrirtækin nú lokað á aðganginn. Skiptar skoðanir eru um dóminn en þeir sem eru á móti honum, segja að þar sé vegið að frelsi netsins og verið sé að feta vandrataðan veg í ritskoðun á netinu. STEF hefur lagt fram lögbannskröfu gegn öðrum íslenskum fjarskiptafyrirtækjum og eru þau mál í ferli.
Á Vísi.is er m.a. rætt við Kristínu Garðarsdóttur, framkvæmdastjóra Tölvunar í Vestmannaeyjum. Ummælin hafa vakið athygli en Kristín segir: �??Við erum á báðum áttum með það hvort það eigi að loka á svona síður en ef beiðnin berst verður þetta tekið fyrir af stjórn fyrirtækisins. �?g hef hins vegar stundum sagt að það þurfi að loka póstinum því það fara jú stundum eiturlyf í gegnum póstinn,�?? segir Kristín.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.