�?að þarf að bæta verðmerkingar í Vestmannaeyjum
Neytendastofu hafa í gegnum tíðina borist fjöldi ábendinga varðandi verðmerkinga í Vestmannaeyjum. Fulltrúar stofnunarinnar fóru í kjölfar þess til Vestmannaeyja í byrjun júlí og gerðu könnun á því hvort verðmerkingar hjá verslunum uppfylltu skilyrði laga og reglna. �?ær athugsemdir sem gerðar voru við verslanir í Vestmannaeyjum voru m.a. að verðmerkingar skorti í sýningarglugga verslana en verslunum er skylt að verðmerkja vöru þar sem hún er boðin til sölu þ.m.t. í sýnargluggum eða á sölusíðum á netinu. �?á voru einnig gerðar athugsemdir við óverðmerktar vörur í matvöruverslunum og í einhverjum tilvikum vantaði skanna til að fá endanlegt verð á forpakkaðar vörur.
Veitingastöðum ber skylda til að hafa matseðil við inngang til að mögulegir viðskiptavinir geti kynnt sér úrval og verð áður en gengið er til borðs. �?á eiga magnupplýsingar drykkja að koma fram á matseðli og sé selt áfengi skulu vínmál vera löggilt. Eftir könnunina er ljóst að veitingastaðir í Vestmannaeyjum þurfa að bæta úr þessum atriðum til að geta veitt viðskiptavinum sínum þjónustu í samræmi við lög og reglur.
Að öðru leyti voru verðmerkingar í Vestmannaeyjum í ágætu horfi en Neytendastofa mun fylgja könnuninni eftir og ganga úr skugga um að úrbætur verði gerðar.
Neytendastofa mun halda áfram verðmerkinga- og verðkannanaeftirliti sínu og gera athugun hjá fleiri verslunum. Neytendur geta komið ábendingum á framfæri í gegnum rafræna Neytendastofu á vefslóðinni neytendastofa.is.

Nýjustu fréttir

„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.