Þakklæti til borgarráðs og borgarstjóra

Vestmannaeyjabær var valinn af borgarráði Reykjavíkur sem heiðursgestur á Menningarnótt Reykjavíkur sem fram fór þann 19. ágúst sl. Bæjarráð ræddi þetta tilefni á fundi sínum í vikunni. Vestmannaeyjabær var valinn að þessu sinni í tilefni af 50 ára goslokaafmæli á árinu 2023 og vegna langvarandi vinatengsla milli bæjarfélaganna.

Fjölbreytt dagskrá í tengslum við heiðursþátttöku Vestmannaeyjabæjar var í boði og má m.a. nefna að í Tjarnarsal Ráðhússins var komið fyrir hvítu Þjóðhátíðartjaldi og boðið upp á ekta Eyjastemmingu með frábærum og fjölbreyttum skemmtiatriðum. Jafnframt var boðið upp á tvær ljósmyndasýningar; “Til hafnar”, um bátana sem sigldu með Vestmannaeyinga hina örlagaríki gosnótt og “Við gosið”, með völdum ljósmyndum Sigurgeirs Jónassonar.

Viðburðirnir voru vel sóttir og tókust vel. Fjöldi gesta lagði leið sína í Tjarnarsal Ráðhússins og á sýningarnar.

Bæjarráð vildi í niðurstöðu sinni um málið koma fram sérstöku þakklæti til borgarráðs Reykjavíkur og borgarstjóra fyrir þann heiður sem Vestmannaeyjabæ var sýndur með valinu. Jafnframt vill Vestmannaeyjabær þakka því starfsfólki Reykjavíkurborgar og Vestmannaeyjabæjar, sem og öllum þeim öðrum einstaklingum sem leitað var til og komu að framkvæmdinni, fyrir frábært starf. Einnig vill bæjarráð þakka félögum í ÁtVR fyrir þátttöku og aðstoð við viðburðinn í Ráðhusinu.

Nýjustu fréttir

Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.