Þarf bæjarstjórinn að „koma til Eyja''?
14. maí, 2022

 

Nú er um það bil að ljúka frekar kyrrlátri og kurteislegri kosningabaráttu hér í Eyjum – a.m.k. af hálfu frambjóðendanna sjálfra. Við skulum vona að það haldist allt til enda. Það er miklu uppbyggilegra og skemmtilegra að ræða um ögranir og úrlausnarefni okkar Eyjamanna á málefnalegan hátt – en með persónulegu skítkasti.

Það er í rauninni aðeins eitt í þessari kosningabaráttu sem veldur verulegum heilabrotum. Það eru svör D-listafólks þegar spurt er um bæjarstjóraefnið þeirra. Í dag birtist grein um málið frá öllum frambjóðendum D-listans – og ég var eiginlega engu nær. Ekki einu sinni um það hvort starfið yrði auglýst.

Og þetta sagði oddviti D-listans um málið á opnum framboðsfundi í Eldheimum á miðvikudagskvöldið:

„Við ætlum að velja okkur bæjarstjóra, við teljum að þegar og ef við verðum í meirihluta þá mun fjöldinn allur af hæfileikaríku fólki láta okkur vita að það sé tilbúið að koma til Eyja ef að við mundum getað hugsað okkur að ráða það sem bæjarstjóra“.

Hérna virðist þó a.m.k. liggja fyrir að nýr bæjarstjóri á vegum D-listans myndi „koma til Eyja”. Hann sé ekki hér fyrir. Ekki veit ég af hverju þarf endilega að sækja hann upp á land – en það hljóta að vera einhverjar skýringar á því.

Ég tel sjálfur afar mikilvægt fyrir kjósendur að vita hvert sé bæjarstjóraefni þeirra framboða sem valið stendur um. Lágmark er að vita HVERNIG bæjarstjórinn yrði valinn; t.d. að undangenginni auglýsingu eða með öðrum hætti.

Og til að taka af öll tvímæli: Íris Róbertsdóttir er bæjarstjóraefni H-listans. Og hún þarf ekki að „koma til Eyja“. Hún er hér.

Við vitum vel hvað við höfum – en vitum EKKERT hvað við fáum.

Kjósum H-listann – Betri Eyjar fyrir alla!

Páll Magnússon, oddviti Fyrir Heimaey

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst