�?að má segja að þungu fargi hafi verið lyft af þjóðinni þegar ríkisstjórn Sigmundar Davíðs tók við vorið 2013. Á aðeins einu ári hefur núverandi ríkisstjórn lyft grettistaki og komið efnahagslífinu á réttan kjöl. �?að eru bjartir tímar framundan á Íslandi.
Heimilin eru undirstaðan
Fyrsta mál ríkisstjórnarinnar á haustþingi 2013 var að leggja fram þingsályktunartillögu um aðgerðir vegna skuldavanda heimila á Íslandi. Tillagan var í 10 liðum og nú að þingi loknu hefur öllum liðum hennar verið lokið eða komið í áframhaldandi farveg. Leiðréttinguna ber þar hæst en með henni er komið til móts við heimili með verðtryggð húsnæðislán með aðgerðum sem fyrri ríkisstjórn hélt fram að væru óframkvæmanlegar. Heildaráhrif leiðréttingarinnar eru metin um 150 milljarðar fyrir 100 þúsund heimili. Umsóknarfrestur var til 1. september og ég vona að sem flestir hafi nýtt sér úrræðin.
Bjartsýni í stað svartsýni
Mjög jákvæð breyting hefur orðið á helstu hagtölum og efnahagsstærðum á því ári sem er liðið síðan ríkisstjórnin tók við. Hallalaus fjárlög voru lögð fram í fyrsta sinn frá hruni. Atvinnuleysi er það minnsta í Evrópu og kaupmáttaraukning er ein sú mesta í Evrópu. Hagvöxtur síðasta árs er mun betri en spáð var og spáð er enn betri (rúmlega 3%) hagvexti á þessu ári. Aukin bjartsýni hefur aukið einkaneyslu og fjárfestingu. Hagvöxtur er drifinn áfram af fjárfestingu og útflutningi. Bjartsýni hefur tekið við af svartsýni og eymdarvísitalan hefur ekki verið lægri síðan 2007.
�?jóðarskútan siglir í rétta átt
Með tilkomu Landeyjahafnar hefur fjöldi ferðamanna aukist í Vestmannaeyjum. �?ví miður hefur það verkefni ekki gengið átakalaust fyrir sig en menn vinna nú hörðum höndum að því að finna lausnir svo höfnin verði nothæf allan ársins hring.
Eyjarnar eru einstök náttúruperla og afþreyingar- og þjónustufyrirtækjum á sviði ferðaþjónustu hefur fjölgað talsvert. Metnaðurinn er mikill. Saga eyjanna er merkileg og mannlífið og menningin einstök. Ferð til Vestmannaeyja er svo sannarlega þess virði.
Stjórnendur í atvinnulífi telja að fjárfestingar á árinu muni aukast, þá sérstaklega í ferðaiðnaði og hjá smærri fyrirtækjum. �?að eru góðar fréttir fyrir atvinnulífið.
Sumarið er liðið. En þrátt fyrir að veturinn vofi yfir, dimmur og kaldur, þá hefur von kviknað í brjóstum margra. �?jóðarskútan siglir loks í rétta átt og það eru góðar fréttir fyrir landsmenn alla. Góðar fréttir sem við þurfum öll á að halda.