�?jónustusamningur HSU við Litla Hraun og Sogn
Í dag var undirritaður þjónustusamningur milli Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Litla Hrauns og Sogns.
Efni samningsins er um trúnaðarlæknis- og heilbrigðisþjónustu gagnvart heilsuvernd starfsmanna Litla Hrauns og Sogns og aðgengi þeirra að heilbrigðisstarfsmönnum HSU.
Heilbrigðisstarfsfólk HSU mun annast skráningar fjarvista og halda utan um heilsufarsupplýsingar. Nú þegar er HSU með svipaða samninga við önnur fyrirtæki á svæðinu og hefur þetta fyrirkomulag gefist vel. Reynslan hefur sýnt að fjarvista- og veikindadögum hefur fækkað til muna við þetta og minnkandi starfsmannavelta er hjá þeim fyrirtækjum sem eru með svona þjónustusamning. Enda er markmiðið að auka starfsánægju, stuðla að andlegri og líkamlegri vellíðan starfsmanna og minnka líkur á atvinnutengdum óþægindum, sjúkdómum eða slysum.
Fyrirkomulag þjónustunnar felst í viðtalstímum hjúkrunarfræðings og trúnaðarlæknis á vinnustaðnum, sem munu veita ráðgjöf vegna veikinda eða slysa og gefa út vottorð. Símamóttaka hjúkrunarfræðings vegna veikindatilkynninga verður á hverjum morgni og verða veikindi greind og vísað áfram til læknis sé þess þörf. Einnig er boðið uppá árlega heilsufarsskoðun, þar sem mældur verður blóðþrýstingur, kólesteról, blóðsykur, hæð, þyngd og líkamsþyngdarstuðull reiknaður. Auk þess verður starfsmönnum boðið upp á inflúensubólusetningu sem og aðrar bólusetningar eftir atvikum, fræðslu um slysavarnir, svefnvandamál, hreyfingu, næringu og heilbrigði. Starfsmannastjóri Litla Hrauns og Sogns mun síðan reglulega fá tölfræðilegar upplýsingar um fjölda og tegund fjarvista starfsmannana.

Nýjustu fréttir

Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí
Standa þarf vörð um hafrannsóknir
Stórseiðahús reist á aðeins tíu mánuðum
Hafró leggur til minni þorskkvóta en mikla aukningu í loðnu
Leiðin liggur á Eyjuna fögru
Enn að eftir 40 ár sem blaðamaður
Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.