�?riðja tap ÍBV í röð
Kvennalið ÍBV í knattspyrnu tapaði kvöld gegn Fylki í 4. umferð Pepsídeildarinnar 0:1 en liðin áttust við á Hásteinsvelli. Fylkir komst yfir í lok fyrri hálfleiks og átti auk þess skot í slá í leiknum en þrátt fyrir það var jafnræði með liðunum og fengu leikmenn ÍBV einnig sín færi til að skora. En það var eins og það væru álög á liði ÍBV í kvöld, síðasta snertingin eða síðasta sendingin mistókst alltaf þannig að góð færi runnu út í sandinn. ÍBV tapaði jafnframt þriðja leik sínum í röð en liðið byrjaði Íslandsmótið á laglegum sigri á Selfossi á útvelli en síðan hefur liðið tapað fyrir Stjörnunni á heimavelli, �?ór/KA á útivelli og nú Fylki á heimavelli. Næsti leikur liðsins er gegn Aftureldingu, sem er neðst í deildinni með ekkert stig.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.