�?egar komnar voru fimm mínútur fram yfir venjulegan leiktíma, leit allt út fyrir að ÍBV næði í gott stig gegn FH í Kaplakrika í Pepsídeild karla. Eyjamenn fengu þá hornspyrnu og hefðu jafnvel getað stolið sigrinum. En hlutirnir fóru eins illa og hægt var á lokaandartökum leiksins. FH-ingar náðu boltanum eftir hornið, brunuðu í sókn og markvörður ÍBV, Abel Dhaira, sem fáa hefur heillað í fyrstu leikjunum, fór í skógarhlaup, féll um samherja sinn og FH-ingar skoruðu í tómt markið. Lokatölur urðu því 1:0 fyrir FH, svekkjandi fyrir Eyjamenn sem höfðu lagt mikla áherslu á varnarleikinn í dag og varist ágætlega.
Miðað við lýsingar af leiknum, þá átti Abel alls ekki góðan dag og ekki í fyrsta sinn í byrjun móts. Flestir eru sammála um að hann kostaði ÍBV eitt mark gegn Stjörnunni og hann hefði átt að gera betur í einu af þremur marka Fylkis, jafnvel tveimur. Markið í dag á hann skuldlaust en þetta var í þriðja sinn í leiknum sem Abel fór í skógarhlaup. �?ær raddir gerast æ háværari að Eyjapeyinn Guðjón Orri Sigurjónsson, varamarkvörður fái tækifærið í næsta leik ÍBV enda væru flestir leikmenn komnir á tréverkið miðað við þau mistök sem Abel hefur gert í upphafi móts.
ÍBV hefur nú tapað þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum og er með aðeins eitt stig. Liðið situr í 11. sæti deildarinnar, næst neðsta og í fallsæti. Eyjamenn geta bjargað andlitinu með því að vinna Víking á heimavelli á fimmtudaginn og enda þannig með fjögur stig eftir �??hraðmótið�?? í upphafi leiktíðar. Hins vegar er draumurinn um Evrópusætið í blámóðunni eins og staðan er í dag og fátt annað sem bendir til annars en að fallbaráttan verði hlutskipti ÍBV. Í það minnsta þarf margt að breytast ef ekki á illa að fara.