�?riðji sigurinn í röð
ÍBV er á góðri leið með að kveða falldrauginn í kútinn eftir þriðja sigurleik liðsins í röð í Pepsídeild karla. Í kvöld lagði liðið Fram að velli 2:0 en mörkin komu með rúmlega 85 mínútna millibili, það fyrra á 5. mínútu og það síðar þegar venjulegum leiktíma var lokið. Mörkin gerðu þeir Víðir �?orvarðarson og Jonathan Glenn en báðir voru þeir að skora í öðrum leik sínum í röð. Glenn er auk þess markahæstur í Pepsídeildinni þegar þetta er skrifað, hefur skorað 7 mörk í leikjunum 12 sem ÍBV hefur lokið. Framherjinn sterki var harðlega gagnrýndur í upphafi leiktíðar vegna frammistöðu sinnar á vellinum en sá hefur svarað eins og best verður á kosið, með því að raða inn mörkum.
Með sigrinum lyfti ÍBV sér upp í 7. sæti en Eyjamenn eru nú með 13 stig, einu stigi meira en Breiðablik, sem er í 8. sæti og tveimur meira en Fjölnir og Fylkir. Breiðablik og Fjölnir eiga reyndar leik til góða og geta skotist upp fyrir ÍBV. En engu að síður er ÍBV nú fjórum stigum frá fallsæti og allt annað að sjá til liðsins. Ef það er eitthvað sem mætti finna að leik ÍBV í kvöld, þá var það að liðinu skyldi ekki takast að skora fleiri mörk í fyrri hálfleik þegar liðið skapaði sér fjölda færa, þar á meðal nokkur dauðafæri. Stuðningsmenn ÍBV voru því á sætisbrúninni allt þar til í uppbótartíma að Jonathan Glenn innsiglaði sigurinn.
Næsti leikur verður hins vegar erfiður en þá sækir ÍBV Stjörnuna heim eftir viku. Garðbæingar eru sem stendur í efsta sæti með 25 stig og eru eina taplausa liðið í deildinni, ásamt FH. �?ar á eftir tekur ÍBV á móti KR í undanúrslitum bikarkeppninnar á Hásteinsvelli fimmtudaginn 31. júlí, eða á fimmtudegi fyrir þjóðhátíð.

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.