�?rír réðust á einn
Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í liðinni viku án þess þó að um alvarleg mál hafi verið að ræða. Nokkur erill var í kringum skemmtanahald helgarinnar og fékk m.a. einn að gista fangageymslu lögreglu vegna ölvunar og óspekta.
Ein líkamsárás var kærð eftir skemmtanahald helgarinnar en um var að ræða árás fyrir utan einn af veitingastöðum bæjarins. �?arna höfðu þrír menn rétt um tvítugt ráðist á annan á svipuðum aldri með þeim afleiðingum að sá sem fyrir árásinni varð þurfti að leita til læknis. Hins vegar voru áverkar ekki alvarlegir og er málið í rannsókn.
Eigandi íbúðar sem hafði verið í leigu óskaði eftir að lögregla myndi leita í íbúðinni eftir að leigjandinn hafði yfirgefið íbúðina. Við leitina kom í ljós að neysla fíkniefna hafði farið fram í íbúðinni, auk þess sem ætlaðar steratöflur sem og loftskammbyssa fundust við leitina.
Eitt brot á umferðarlögum var kært í vikunni en um var að ræða vanrækslu ökumanns við að nota öryggisbelti við aksturinn.

Nýjustu fréttir

Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Þóra Guðný og Sveinn flutt í nýja húsið
ÍBV mætir KR á Meistaravöllum í kvöld
Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.