Tvö vinnuslys í vikunni
Vikan og helgin var frekar róleg hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Skemmtanahaldið fór ágætlega fram en eitthvað var þó um pústra, en engar kærur liggja þó fyrir. Eitthvað var um að kvartað var yfir hávaða í tenglsum við skemmtanahald helgarinnar.
Einn þjófnaður var tilkynntur til lögreglu í vikunni en um var að ræða þjófnað á reiðhjóli þar sem það var við Íþróttamiðstöðina. Talið er að hjólinu hafi verið stolið að kvöldi 7. maí sl. Um er að ræða svart GT reiðhjól, 21. gíra, brettalaust og búið að festa púða á hnakkinn. �?eir sem einhverjar upplýsingar hafa hvar hjólið er niðurkomið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu.
Tvö vinnuslys voru tilkynnt til lögreglu í vikunni. Í fyrra tilvikinu var um að ræða slys á Faxastíg þar sem maður féll af þaki. Maðurinn var með meðvitund þegar sjúkralið og lögregla kom á staðinn og var fluttur á Heilsugæslu Vestmannaeyja til skoðunar. Seinna tilvikið var um borð í �?órunni Sveins VE-401 þar sem maður sem var að vinna við löndum féll ofan í lest skipsins. Talið er að fallið hafi verið um 6 metrar. Maðurinn fann til eymsla í höfði, baki og öðrum fæti eftir fallið og var fluttur á Heilsugæslu Vestmannaeyja til skoðunar.
Tvær kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum og er í báðum tilvikumum um að ræða ólöglega lagningu ökutækja.
Lögreglan hvetur eigendur ökutækja að skipta yfir á sumardekkin en búast má við því að næstu daga verið farið að beita sektum vegna aksturs á negldum hjólbörðum. Sekt fyrir hvern nelgdan hjólbarða er kr. 5000,-.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.