Umgengni lýsir innri manni
Nú er í gangi átak við að merkja og hreinsa upp númerslausar bifreiðar af lóðum og götum sveitarfélagsins. Í hreinsunarvinnunni felst að skrifleg áminning verður límd á númerslausar bifreiðar, þar sem viðkomandi eigendum er gefinn viku frestur til að fjarlægja þær. Að þeim tíma liðnum mun Vaka ehf, fjarlægja viðkomandi bifreiðar á kostnað eigenda sinna og draga þær í Vökuportið í Reykjavík. Vaka sendir bifreiðaeigendunum bréf þar sem þeir verða áminntir um gjaldfallinn kostnað og hvattir til að ganga frá sínum málum.
Sé bifreið leyst út af eiganda greiðir sá hinn sami fyrir kostnað sem á bifreiðina hefur fallið. Kostnaður við að fjarlægja eina bifreið felst í flutningi hennar til Reykjavíkur ásamt geymslugjaldi pr. dag í Vökuportinu og innskriftargjaldi.
Sveitarfélagið hvetur alla til að sameinast í átakinu. Tökum höndum saman og göngum vel um. �??Umgengni lýsir innri manni�??.

Nýjustu fréttir

Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Óboðnir gestir undir yfirborðinu
Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.