Undanúrslitasætið tryggt
ÍBV og Fylkir mættust í 8-liða úrslitum Borgunarbikars karla þar sem ÍBV hafði betur 4-0. Leikurinn fór frekar rólega af stað og var ekki mikið fyrir augað fyrsta hálftímann það dró loksins til til tíðinda á 34. mínútu þegar Bjarni Gunnarsson kom ÍBV í 1-0. Bjarni fékk boltann eftir að Bjarni �?órður reyndi að kýla boltann í burtu úr teignum og Bjarni setti boltann snyrtilega í markið. �?annig var staðan í hálfleik en ÍBV hafði verið sterkari aðalinn í fyrri hálfleik.
Síðari hálfleikur var mun betri en sá síðari og mörkunum rigndi hjá Eyjamönnum. Ian Jeffs kom ÍBV í 2-0 á 54. mínútu með frábæru marki. Hann snýr af sér varnarmann með frábærri gabbhreyfingu og smyr boltann í skeytin hægra megin. Aron Bjarnason kom svo ÍBV í 3-0 á 64. mínútu. Bjarni fékk boltann og bar hann upp völlinn og átti frábæra sendingu á Aron. Aron var einn á auðum sjó og setti boltann glæsilega í stöngina og inn. Eyjamenn voru alls ekki hættir og 70. mínútu kom Bjarni Gunnarsson ÍBV í 4-0. Bjarni fékk sendingu af kantinum tók hann á kassann og tók boltann á lofti og þrumaði í markið. Frábær 4-0 sigur.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.