Undirbúningur gengur vel og allir mjög spenntir fyrir kvöldinu
Nú styttist í tónleikana Lífið er yndislegt �?? �?g veit þú kemur í Hörpunni sem Bjarni �?lafur Guðmundsson, tónleikahaldari, kallar eitt stærsta árganga- og ættarmót landsins. �?eir verða í Hörpu laugardaginn 24. janúar og hefur miðasala gengið vel en eitthvað er enn eftir af miðum. Í boði er hagstæður pakki fyrir Eyjamenn sem inniheldur ferð með Herjólfi fram og til baka, miða á tónleikana og gistingu á Hótel Center Plaza. �??�?eir sem vilja nýta sér þetta kostaboð geta haft samband við afgreiðslu Herjólfs,�?? sagði Bjarni �?lafur en herbergið kostar 12.900 krónur nóttin.
�??Við vorum með leik á Facebook þar sem Vilborg Sigurðardóttirr var svo heppin að vera dregin út. Fær hún ferð með Herjólfi fyrir tvo, tvær nætur á Center Plaza og tvo miða á tónleikana og út að borða. �?g veit að hún á eftir að njóta helgarinnar í botn,�?? sagði Bjarni �?lafur.
Hann segir undirbúning ganga vel og allir séu mjög spenntir fyrir kvöldinu. Kynnir verður Páll Magnússon og tónlistinni stjórnar �?orvaldur Bjarni. Eru þetta fjórðu tónleikarnir sem Bjarni �?lafur heldur í Hörpu ásamt konu sinni, Guðrúnu Mary �?lafsdóttur og tengjast Vestmannaeyjum. �??Núna verðum við ekki með eitt þema heldur erum með bestu dægurlagaperlurnar sem við kennum við Eyjar,�?? bætir Bjarni við og leggur áherslu á að flytjendur séu ekki af verri endanum.
�?eir eru Björgvin Halldórsson, Páll �?skar, Sigríður Beinteinstóttir, Bjartmar Guðlaugsson, Sverrir Bergmann og Halldór Fjallabróðir, Hreimur �?rn, Kristján Gísla, Silja Elsabet, Sunna Guðlaugs, Alexander Jarl, Alma Rut og �?skar Einarsson ásamt meðlimum úr Gospelkór Reykjavíkur.
Í hljómsveitinni, sem �?orvaldur Bjarni �?orvaldsson stjórnar, eru Eiður Arnarsson á bassa, Birgir Nielsen á trommur, Jón Elvar Hafsteinsson á gítar, Kjartan Valdemarsson á hljómborð og harmonikku, Vignir �?ór Stefánsson á hljómborð, Sigurður Flosason á saxófón, flautur og slagverk, Kjartan Hákonarson á trompet og �?orvaldur Bjarni sjálfur á gítar. �?á leikur Lúðrasveit Vestmannaeyja undir stjórn Jarls Sigurgeirssonar og hljómsveitin Logar kemur fram á tónleikunum. �??Við eigum líka okkar fulltrúa meðal söngvaranna. �?að eru þau Silja Elsabet, Sunna Guðlaugs og Alexander Jarl og ekki má gleyma Kristjáni Gísla sem er gamall Eyjamaður.�?? �??Eyjamaðurinn og listamaðurinn Gunnar Júlíusson sér um hönnun alls markaðsefnis, Sighvatur Jónsson sá um útvarpsauglýsingar, prógrammið fyrir tónleikana er prentað hjá peyjunum Lauga og �?la í Logum og svo njótum við ráðgjafar Eiðs bassaleikara Arnarssonar í þessu verkefni okkar, þannig að eyjalegra getur þetta varla orðið,�?? bætir Bjarni �?lafur við.
Bjarni �?lafur segist hlakka mikið til tónleikanna. �??�?g veit að þeir verða stórkostlegir enda valinn maður í hverju rúmi. �?að eru einhverjir miðar eftir og þeir sem hafa áhuga geta pantað á midi.is eða harpa.is. �?eir sem ekki treysta tölvunum geta hringt beint í miðasölu Hörpunnar, 528-5050, þar er afar elskulegt starfsfólk sem klárar málin hratt og vel,�?? sagði hann að endingu.

Nýjustu fréttir

Standa þarf vörð um hafrannsóknir
Stórseiðahús reist á aðeins tíu mánuðum
Hafró leggur til minni þorskkvóta en mikla aukningu í loðnu
Leiðin liggur á Eyjuna fögru
Enn að eftir 40 ár sem blaðamaður
Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.