Undirbúningur handboltaliðanna í fullum gangi
Í gær hóf karlalið ÍBV í handbolta leik á Ragnarsmótinu svokallaða á Selfossi en mótið er liður í undirbúningi liðsins fyrir komandi tímabil. Okkar menn spiluðu þá gegn heimamönnum og fóru þar með sigur af hólmi, lokastaða 25-30 en í hálfleik var staðan12-17.
Mörk ÍBV skoruðu eftirfarandi: Theodór Sigurbjörnsson 12, Róbert Hostert 3, Agnar Smári Jónsson 3, Sigurbergur Sveinsson 2, Magnús Stefánsson 2, Dagur Arnarsson 2, Kolbeinn Arnarsson 1, Friðrik Hólm Jónsson 1, Brynjar Karl �?skarsson 1, Kari Kristjánsson 1, Sindri Haraldsson 1, Daníel Griffin 1.
Liðið á aftur leik á föstudag gegn Val kl. 20:00 og á laugardag gegn Haukum kl. 12:00.
Kvennaliðið er um þessar mundir á heimleið úr æfingaferð í Danmörku þar sem þær hafa æft með og spilað gegn dönskum liðum, m.a. dönsku meisturunum. Greint var frá á facebook síðu félagssins.
Bæði lið hefja leik í Íslandsmótinu 10. september n.k. með heimaleikjum. Stelpurnar mæta Gróttu kl. 13.30 og strákarnir mæta Haukum kl. 16.00.

Nýjustu fréttir

Þóra Guðný og Svenni um bygginarframkvæmdina  
Gular viðvaranir víðast hvar
Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.