Framtíð samfélagsins veltur á ungu fólki, um það þarf ekki að deila. Í því er fólgin ábyrgð sem ungt fólk má ekki víkja sér undan. �?au verða því sem fyrst að koma að mótun samfélagsins og láta að sér kveða. Vinna sínum hugmyndum brautargengi og berjast fyrir trú sinni og áherslum. Til þess er hægt að fara margar leiðir. Ein sú áhrifaríkasta, nærtækasta og skemmtilegasta er virk þátttaka í stjórnmálastarfi.
Fyrir ungliða er það að velja sér stjórnmálaflokk til að starfa með oft vandasamt verk. Vilja hvers og eins þarf að virða. Stefnurnar og vinnubrögðin eru jafn ólíkar og fólkið sjálft. Við teljum að Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum sé besti kosturinn fyrir ungt fólk, rétt eins og aðra Eyjamenn. Í gegnum tíðina hefur flokkurinn sýnt það að hann treystir ungu fólki til áhrifa. �?essi vilji hefur nú enn og aftur verið staðfestur með því að sex einstaklingar á ungliðaaldri eru á meðal þeirra fjórtán sem skipa framboðslista flokksins fyrir kosningarnar í vor.
Eyverjar eru félag ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum. Innan starfsins rúmast alls kyns skoðanir og við þurfum ekki öll að vera sammála alltaf heldur fögnum við fjölbreytileikanum. �?egar líður að sveitarstjórnarkosningum er tími ungs fólks að sækja fram, með nýjar og ferskar hugmyndir. Starfið er galopið og hafir þú áhuga á því að taka þátt, hvetjum við þig til þess að setja þig í samband við aðra hvora okkar eða aðra unga sjálfstæðismenn sem þú veist um.
Starf Eyverja hefur í gegnum tíðina verið öflugt og hafa Eyverjar tekið virkan þátt í starfi núverandi meirihluta. �?að samstarf hefur leitt til markvissrar uppbyggingar í þeim málaflokkum sem standa ungu fólki nærri. Endurbætur á miðbænum hafa hækkað þjónustustigið, uppbygging í ferðaþjónustu hefur skapað jarðveg fyrri fjöldann allan af veitinga- og skemmtistöðum, markviss uppbygging á íþróttaaðstöðu er nú vettvangur öflugra íþróttaakademía, gjaldfrjálst aðgengi að sundlaug fyrir alla bæjarbúa að 18 ára aldri er ríkur liður í heilsueflingu, nýtt útisvistarsvæði við sundlaugina er einstakt, mikil uppbygging í kringum aðstöðu til iðkunar menningar og lista setur allt slíkt starf á æðra plan, niðurgreiðsla á þjónustu dagmæðra hefur verið aukin, þjónusta leikskóla hefur verið bætt. Lengi má áfram telja og merkin eru víða. Tími góðra verka verður að halda áfram.
Við teljum að reynslan hafi sýnt að Sjálfstæðisflokkurinn sé besti kosturinn fyrir ungt fólk og Eyjamenn alla og hvetjum Eyjamenn til að styðja við núverandi meirihluta með atkvæði sínu í maí.