�?rslitin hefjast í dag
Kvennalið ÍBV hefur leik í úrslitakeppninni í handbolta í dag þegar liðið tekur á móti FH í 8-liða úrslitum. Liðin hafa til þessa leiki tvívegis í deildarkeppninni en báðir leikirnir voru jafnir en ÍBV hafði sigur í þeim báðum. Leikurinn hefst klukkan 13:30 en Jón Gunnlaugur Viggósson, annar tveggja þjálfara liðsins segir að stuðningurinn á heimavelli skipti sköpum.
Mér líst bara mjög vel á að mæta FH. Við erum búnar að eiga tvo hörkuleiki gegn þeim í vetur og búumst ekkert við auðveldum leikjum. �?etta verður upp á líf og dauða,�?? sagði Jón Gunnlaugur Viggósson, þjálfari ÍBV í samtali við Eyjafréttir. Svo skemmtilega vill til að Jón Gunnlaugur þjálfaði FH í fyrra og lenti einmitt gegn ÍBV í 8-liða úrslitum og laut í lægra haldi.
�?ið farið inn í þessa viðureign sem stóra liðið. Er ekki öll pressan á ÍBV?
�??Við höfum staðið okkur vel í vetur og eigum það skilið að vera kallað stóra liðið. En við vanmetum ekki FH-liðið. �?ær eru með mjög gott lið, ekkert síðra lið en í fyrra en síðustu þrjú tímabil hafa ungar stelpur verið að spila á fullum krafti með meistaraflokki FH. Við verðum að vera með einbeitninguna í lagi í 60 mínútur því það getur allt gerst í þessum leikjum. Í raun og veru hefur staðan í deildinni ekkert með það að gera hvað gerist í þessum leikjum.
Varðandi pressuna, þá er alltaf pressa á öllum liðum í úrslitakeppni. �?að má lítið út af bregða og þá erum við úr leik. �?annig að það er ekkert meiri pressa á okkur en öðrum liðum. Við förum í þessa rimmu ákveðin í að komast áfram. Við vanmetum ekki FH enda höfum við ekkert efni á því. Við erum með tvær mjög ungar stelpur í byrjunarliðinu sem eru að fá smjörþefinn af svona úrslitakeppni. Við viljum vvinna alla leiki á heimavelli og stefnum á það út tímabilið.�??
Stuðningurinn lykilatriði
Eru allir leikmenn heilir?
�??Já, allir eru heilir og tilbúnir í slaginn. �?að er góður mórall í liðinu en um leið eru leikmenn einbeittir. Við vonumst bara til þess að fá áfram góðan stuðning á sunnudaginn. Ein af ástæðunum fyrir því að ÍBV er með besta vinningshlutfallið á heimavelli, ásamt Stjörnunni, er sá frábæri stuðningur sem við fáum á okkar heimavelli. �?g skora á Eyjamenn að fylkja sér á bak við stelpurnar okkar og láta vel í sér heyra,�?? sagði Jón Gunnlaugur að lokum.

Nýjustu fréttir

Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.