Samgöngumál eru sígilt umræðuefni í Eyjum. Sú umræða er ekki ný af nálinni. Samgöngur við Vestmannaeyjar hafa alltaf verið brösóttar. �?ar hefir veðrið spilað stórt hlutverk. Gísli
Johnsen VE, 30 tonna bátur, sigldi milli Vestmannaeyja og Stokkseyrar á sínum tíma og gat tekið einn bíl á lestarlúguna. Vonarstjarnan VE, sem sumir kölluðu Mjólkurstjörnuna af því að hún flutti mjólkina til Eyja, tók við af Gísla Johnsen VE. Strandferðaskipin Esja og Herðubreið sigldu milli Eyja og Reykjavíkur sitt hvora vikuna. Svo kom elsti Herjólfur og sigldi annan hvern dag milli Eyja og Reykjavíkur og hálfsmánaðarlega til Hornafjarðar.
�?etta kemur fram í samantekt Gísla Valtýssonar um sögu um samgöngur á sjó milli lands og Eyja í síðasta blaði Eyjafrétta. Og Gísli heldur áfram : Sá Herjólfur fór svo að sigla til �?orlákshafnar yfir sumartímann. �?á voru allir bílar, sem skipið flutti, hafðir á lestarlúgum skipsins og á dekkinu, og voru því oft í sjóbaði á leiðinni, ef eitthvað var að veðri. Herjólfur númer tvö kom árið 1976 og og núverandi Herjólfur 1992. Flugfélag Íslands flaug milli Eyja og Reykjavíkur, einnig flaug Flugfélagið af og til á Hellu og Skógasand. Íslandsflug
fór í samkeppni við Flugfélag Íslands í Vestmannaeyjafluginu og sinnti því um nokkurra ára skeið.
Flugfélag Vestmannaeyja flaug á Bakkaflugvöll til margra ára, eða þangað til að Landeyjahöfn var tekin í notkun. Og nú flýgur Flugfélagið Ernir milli Eyja og Reykjavíkur. Alltaf hefur sitt sýnst hverjum um þær samgöngur sem í boði eru hverju sinni, en sennilega er umræðan hin síðari ár meiri en áður. Væntingar til Landeyjahafnar voru miklar, það var talað um heilsárshöfn með nokkurra daga frátöfum á ári, vegna veðurs.
�?að átti líka í kjölfarið á byggingu hafnarinnar, að koma nýtt skip sem hentaði henni betur en núverandi Herjólfur. Í síðasta blaði Eyjafrétta var farið yfir fréttir og viðtöl, sem
birst hafa í blaðinu um Bakkafjöru/ Landeyjahöfn allt frá árinu 2000, þegar fyrsta opinbera umræða um hugsanlega hafnargerð þar hófst. Í sumar verða liðin 5 ár frá því Landeyjahöfn
var tekin í notkun og umræðan sem þá hófst um nýtt skip, fastan dælubúnað, minnkandi sandburð og annað það sem átti að vera til bóta, er óbreytt.
Eyjafréttir tóku púlsinn á nokkrum aðilum; stjórnmálafólki, ferðaþjónustuaðilum og hinum almenna Vestmannaeyingi. Hvernig horfa málin við þeim. Viðtölin voru í síðasta blaði og halda áfram í næsta blaði.