Var meinað landa síldarafla á �?órshöfn
Grænlenska skipinu Tasiilaq (sem áður hét Guðmundur VE) var synjað um leyfi til löndunar á �?órshöfn í gær. Farmurinn var síld sem veidd var í lögsögu Grænlands. Skipið er í eigu Royal Greenland Pelagic sem Ísfélag Vestmannaeyja á 10% hlut í.
Um synjunina segir á vef atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins:
�??Afstaða ráðuneytisins í þessum efnum hefur lengi legið fyrir. Hún byggist á að þeir sem ekki eru aðilar að strandríkjasamningi um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum fá ekki að landa hér á landi. �?etta er í samræmi við lög, nánar tiltekið 3. gr. laga nr. 22/1998 um veiðar og vinnslu erlendra skipa í íslenskri fiskveiðilandhelgi. �?etta ákvæði er í samræmi við þau sem mörg önnur lönd hafa og beita við hliðstæðar kringumstæður.
Grænlenskum yfirvöldum hefur verið gerð grein fyrir afstöðu Íslendinga; m.a. á samráðsfundi landanna um fiskveiðar í mars. Grænlenskum útgerðum, sem gera út á veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum, í grænlenskri lögsögu, ætti því ekki að koma þessi afstaða á óvart.
Tilgangurinn með banninu er að standa vörð um norsk-íslenska síldarstofninn, sem hefur átt mjög í vök að verjast undanfarin ár vegna lítillar nýliðunar og verja þannig íslenska hagsmuni.�??
skip.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.