Veiðiferðin fékk óvænt endalok
Landad Ur Vestmannaey Ve 22 Jul
Landað úr Vestmannaey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Á mánudagsmorgun kom Vestmannaey VE með Gullver NS í togi til Neskaupstaðar og sólarhring síðar kom Bergur VE þangað til löndunar.

Rætt er við skipstjóra skipanna þriggja á vef Síldarvinnslunnar. Þar er haft eftir Þórhalli Jónssyni, skipstjóra á Gullver að þeir hafi verið að veiðum á Tangaflaki þegar kælivatnsdæla fyrir aðalvélina bilaði. „Við vorum komnir með 60 tonna afla, nær eingöngu þorsk og ýsu, þegar bilunin átti sér stað. Vestmannaey var ekki langt frá okkur og ákveðið var að hún tæki okkur í tog. Gert er ráð fyrir að viðgerð ljúki í kvöld og þá verður haldið á ný til veiða,” segir Þórhallur.

Kom beiðni um aðstoð frá Gullveri

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir að veiðiferðin hjá þeim hafi fengið óvænt endalok. „Við höfðum verið að veiðum í Norðfjarðardýpi og á Gerpisflaki þegar beiðni um aðstoð kom frá Gullveri. Í upphafi túrsins var blíða en þegar haldið var til aðstoðar Gullveri var kominn kaldaskítur. Aflinn sem við vorum komnir með var um 55 tonn, mestmegnis ýsa,” segir Birgir Þór.

Næst landað í Eyjum

Bergur VE kom til löndunar í gærmorgun með fullferrmi. Jón Valgeirsson skipstjóri segir að veður hafi verið þokkalegt í veiðiferðinni þar til brældi í blárestina. „Við vorum fyrst að veiðum á Glettinganesflaki, síðan á Gerpisflaki og loks á Tangaflaki. Mestur aflinn fékkst á Gerpisflaki og má segja að hann hafi skiptst til helminga, þorskur og ýsa,” segir Jón.

Bergur hélt til veiða á ný sl. nótt og Vestmannaey í morgun. Gert er ráð fyrir að þau landi í heimahöfn í Eyjum fljótlega eftir helgi.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.