Verkfalli sjómanna lokið - Lifnaði strax yfir höfninni
Kjara­samn­ing­ur sjó­manna og SFS sem skrifað var undir á aðfararnótt laugardags var samþykktur naumlega í kosningu sem stóð í gær og í dag. Talið var hjá Ríkissáttasemjara og var niðurstaðan að 52,4% þeirra sem greiddu at­kvæði samþykktu samn­ing­inn en 46,9% voru á móti. �?ar með lýkur verkfalli sjómanna sem staðið hefur hátt í tíu vikur. Strax var mikið líf við höfnina í Vestmanneyjum þar sem menn eru í óða önn að gera skipin klár á sjó. Fara þau ýmist í nótt eða á morgun.
Mikið er undir hjá loðnuskipunum þar sem kvóti Eyjaskipa er í kringum 50 þúsund tonn og komið fram á vertíðina. Búast má við að bolfisskip byrji að tínast til hafnar með afla þegar líður á vikuna og ættu hjól atvinnulífsins í Eyjum að fara að snúast með eðliðegum hætti þegar í vikulok.
Á myndinni er �?orbjörn Víglundsson, stýrimaður á Sigurði að gera klárt til loðnuveiða.

Nýjustu fréttir

Aldan enn of há fyrir Álfsnes
Kjarnaboranir hefjast í Eyjum: „Stærsti áfangi í sögu félagsins til þessa“
Vel heppnaður fundur
Krefjandi umræða styrkir okkur
Viðbragð við svari Eyþórs
Sterkari grunnskóli og öflugri framtíð
Samgöngur – ítrekuð áskorun til þeirra sem ráða
Jakob Frímann ásamt leynigesti á Hljómey Xtra í samstarfi við Aukakrónur Landsbankans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.