Vestmannaeyingar áberandi á Menningarnótt

Vestmannaeyjabær var valinn af borgarráði Reykjavíkur sem heiðursgestur að þessu sinni í tilefni af 50 ára goslokaafmæli á árinu 2023 og langvarandi vinatengslum milli bæjarfélaganna. Það er mikill heiður og sönn ánægja fyrir Vestmannaeyjabæ að vera heiðursgestur hátíðarinnar.

Menningarnótt var haldin í fyrsta sinn árið 1996 og hefur frá upphafi skipað mikilvægan sess í viðburðahaldi í borginni þar sem listafólk, íbúar og rekstraraðilar fá tækifæri til að bjóða til veislu í miðborginni.

Vestmannaeyjabær hefur, í samstarfi við Reykjavíkurborg og fleiri aðila, undirbúið glæsilega dagskrá, um viðburði sem tengjast bæði gosinu á Heimaey árið 1973 og hinni alkunnu Þjóðhátíð sem haldin er ár hvert í Eyjum.

Ráðhús Reykjavíkur: Laugardagur, 19. ágúst

Í Tjarnarsal Ráðhússins verður komið fyrir hvítu þjóðhátíðartjaldi og boðið upp á ekta Eyjastemningu á vegum ÁtVR (Átthagafélags Vestmannaeyinga á Reykjavíkursvæðinu) ásamt léttum veitingum. Auk þess verður fjöldahjálparmiðstöð Rauða krossins á staðnum, en Rauði krossinn skipaði stórt hlutverk í björgunarferlinu meðan á Heimaeyjargosinu stóð. Þá munu ljósmyndir af liðnum Þjóðhátíðum og lifandi myndir úr Heimaeyjargosinu rúlla á stórum skjám ásamt því sem tveimur stórum vikursúlum verður stillt upp á staðnum til að sýna á lifandi hátt hversu gríðarlegt öskumagn settist yfir Vestmannaeyjabæ.

  • Kl. 12:30 Ráðhúsið opnar, létt lög í Dalnum
  • Kl. 13:00 Setning: Ávarp Dags. B. Eggertssonar, borgarstjóra Reykjavíkur og Írisar Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyja
  • Kl. 13:15 Þorsteinn Gunnarsson, borgarritari og Védís Guðmundsdóttir, vefstjóri Reykjavíkurborgar, flytja Oddgeirslag
  • Kl. 13:20 Júníus Meyvant og hljómsveit flytja tónlist
  • Kl. 14:30 Elva Ósk Ólafsdóttir les upp úr dagbók móður sinnar, Rögnu Lísu Eyvindsdóttur, Góu
  • Kl. 14:45 Sæþór Vídó Þorbjörnsson og Kristín Halldórsdóttir flytja Eyjalög
  • Kl. 16:00 Friðrik Dór og Jón Jónsson flytja tónlistaratriði að hætti Þjóðhátíðar

Hafnartorg: Föstudagur til sunnudags, 18.-20. ágúst

Tvær sýningar verða í Hafnartorgi Gallery (næst Edition hótelinu), Til hafnar og Við gosið. Báðar tengjast sýningarnar eldgosinu á Heimaey árið 1973.

Til Hafnar

Opnun ljósmyndasýningarinnar Til hafnar, þar sem minnst er siglingar bátanna frá Vestmannaeyjum hina örlagaríku nótt er eldgosið á Heimaey hófst árið 1973, verður föstudaginn 18. ágúst kl. 16:00. Hvorki fyrr né síðar hafa Vestmannaeyingar verið fluttir yfir hafið líkt og gert var aðfararnótt 23. janúar 1973. Allt að 80 skip og áhafnir sigldu með tæplega fimm þúsund íbúa til hafnar í Þorlákshöfn undir drunum og birtu frá eldgosinu á Heimaey. Þessa nótt urðu bátarnir líflína bæjarbúa. Á sýningunni hverfist sjóndeildarhringurinn um bátana og endurskapar þá sýn sem við höfum af hafinu og siglingum.
Ítarleg lýsing á ljósmyndasýningu bæði á íslensku og ensku

Sýningarstjórar: Joe Keys og Vala Pálsdóttir

Ávörp: Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja

Sýningin Til hafnar verður opin á eftirfarandi tímum:

  • Föstudagurinn 18. ágúst kl. 16:00 – 18:00
  • Laugardagurinn 19. ágúst kl. 12:00 – 17:00
  • Sunnudagurinn 20. ágúst kl. 12:00 – 15:00

Við gosið

Ljósmyndasýningin Við gosið, sem sýnir ljósmyndir Sigurgeirs Jónassonar, verður í Hafnartorg Gallery. Sigurgeir myndaði gosið frá upphafi þess og þar til því lauk í júlí 1973. Um er að ræða valdar ljósmyndir Sigurgeirs af gosinu, þ.á.m. hina þekktu mynd af Landakirkju með eldhafið í baksýn. Það er vandasamt verk að velja úr safni Sigurgeirs, en eldgosamyndir hans hlaupa á þúsundum. Sýningin verður aðgengileg á opnunartímum Hafnartorgs Gallery fram til 3. september n.k.
Ítarleg lýsing á ljósmyndasýningu

Sýningarstjóri: Vala Pálsdóttir

Vestmannaeyjabær hvetur alla, bæði Vestmannaeyinga og aðra áhugasama, til að sækja viðburði um Vestmannaeyjar á hátíðinni og taka þátt í veisluhöldum og sýningum helgarinnar. Jafnframt eru gestir hvattir til að kynna sér götulokanir og bílastæðamál í miðborginni á vef Menningarnætur.

Þjóðhátíðarstemning yfirtekur Ráðhús Reykjavíkur á morgun á Menningarnótt.

Mynd Addi í London.

Nýjustu fréttir

Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.