Nýir búningsklefar og önnur aðstaða leikmanna og starfsfólks knattspyrnuleikja í áhorfendastúkunni við Hásteinsvöll, verður til sýnis í dag föstudaginn 8. apríl frá kl. 16:00-18:00.
Með nýju húsnæði fyrir knattspyrnulið, leikmenn og starfsfólk, verður liðsaðstaðan öll til fyrirmyndar, með nútímalegum aðbúnaði og horft til framtíðar. Í nýrri aðstöðu eru m.a. rúmgóðir búningslefar, góð sturtuaðstaða, heitir pottar, aðstaða fyrir sjúkraþjálfara, dómara, þjálfara og góð geymsluaðstaða.
Með þessum framkvæmdum er stigið fyrsta skrefið í uppbyggingu á allri aðstöðu til íþróttaiðkunar til framtíðar hjá Vestmannaeyjabæ.
Allir eru hvattir til að koma og skoða aðstöðuna.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst