Víða um land eru hjúkrunar- og dvalarheimili aldraðra í miklum fjárhagsvandræðum. �?au heimili sem rekin er af einkaaðilum eru sum hver nánast komin í þrot. Í Eyjum hefur Vestmannaeyjabær gripið inn í fjárhagsvandræði Hraunbúða, með því að greiða tapreksturinn úr bæjarsjóði. Slíkt getur ekki gengið til lengdar. �?að var því að vonum að á fundi í Fjölskyldu- og tómstundaráðikomu fram áhyggjur af stöðu hjúkrunar- og dvalarheimilisins Hraunbúða. Í bókun ráðsins segir: �??Hjúkrunar- og dvalarheimili teljast til stofnanaþjónustu og er á ábyrgð ríkisins. Vestmannaeyjabær rekur Hraunbúðir gegn framlagi frá ríkinu. Frá árinu 2010 hefur sveitarfélagið lagt til þjónustunnar um 141 milljón króna sem er óásættanlegt. Á sama tíma hafa tvö hjúkrunarrými og eitt dvalarrými verið tekið af heimilinu. Í dag eru á þriðja tug einstaklinga með samþykkt vistunarmat á biðlista eftir plássi. �?jónustuhópur aldraðra hefur greint frá mikilli þörf á sérhæfðu rými fyrir heilabilaða og auknu rými fyrir sértæka þjónustu s.s. sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og tómstundir. �?örf er á samþykki ríkisins fyrir auknum hjúkrunar- og dvalarrýmum, sem og samþykki fyrir stækkun á húsrými. �?formlegar viðræður við ríkið vegna stöðu mála hafa engan árangur borið. Ráðið felur framkvæmdastjóra að fara fram á formlegar viðræður um rekstur Hraunbúða í þeim tilgangi að komið verði til móts við þann kostnað sem fallið hefur á sveitarfélagið vegna þjónustunnar. Ráðið samþykkir jafnframt að sótt verði formlega eftir heimild ríkisins að fjölga rýmum og stækka hjúkrunar- og dvalarheimilið Hraunbúðir.�??