Eimskip hefur átt í viðræðum við eigendur Sæferða ehf. um möguleg kaup á fyrirtækinu undanfarnar vikur. Félögin hafa nú undirritað viljayfirlýsingu þess efnis, að því er kemur fram í tilkynningu frá Eimskipum.
Sæferðir reka meðal annars Breiðafjarðarferjuna Baldur sem siglir á milli Stykkishólms og Brjánslækjar með viðkomu í Flatey og hinsvegar Særúnu sem hefur boðið uppá skoðunarferðir um Breiðafjörð.