Sjómannasamband Íslands og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi náðu í gærkvöldi samkomulagi um verðmyndun á fiski. Deiluaðilar hittust í karphúsinu nú klukkan tíu og búist er við að fundurinn muni standa yfir fram á kvöld. �?etta kemur fram á Vísir.is.
�?ar segir að gert sé ráð fyrir að samkomulagið verði borið undir bakland beggja deilenda í kvöld. Skammur tími er til stefnu því ótímabundið verkfall undirmanna og vélstjóra á fiskiskipaflotanum hefst klukkan 23.00 annað kvöld ef ekki semst fyrir þann tíma.
Allt kapp hefur verið lagt á að ná samkomulagi um fiskverð en það er meðal stærstu ágreiningsmálanna í deilunni, en á meðan hafa önnur mál fengið að sitja á hakanum. �?nnur mál verða væntanlega rædd hjá ríkissáttasemjara í dag.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, sagði í samtali við fréttastofu 365 í gær að það yrði viss áfangasigur að ná samkomulagi um fiskverð. �?ví vonist hún til þess að sjómenn endurmeti stöðuna.