Voru á ferðalagi í rúma sex mánuði
Vinkonurnar Guðrún Svanlaug Andersen og �?orgerður Anna Gunnarsdóttir lögðu af stað í september í rúmlega sex mánaða heimsreisu en það hafði verið draumur þeirra í langan tíma.Í nýjasta tölublaði Eyjafrétta birtist viðtal við þær vinkonur en hér má lesa brot úr því
�??Síðan við vorum litlar hefur okkur báðum dreymt um að skoða heiminn og kynnast öðrum menningarheimum. Við vorum búnar með stúdentinn og hvorugar neitt að flýta okkur í háskóla svo að við ákváðum að skella okkur saman í þetta ævintýri,�?? sagði Guðrún Svanlaug. Stelpurnar ferðuðust alls til átján mismunandi landa og fóru í gegnum fimm heimsálfur á ferð sinni. �??Við byrjuðum í New York og héldum svo þaðan til Suður Ameríku þar sem við heimsóttum Argentínu, Brasilíu og Perú. �?aðan fórum við til Asíu, til Japan, Kína, Hong Kong, Kambódíu, Víetnam, Laos, Tælands, Malasíu, Indónesíu, Singapore og Indlands. Svo fórum við til Afríku og skoðuðum Suður Afríku og Kenýu og svo enduðum við ferðina í London,�?? sagði �?orgerður Anna
Hvað stóð upp úr í ferðalaginu?�??Rio de Janeiro er falleg borg sem hefur upp á margt að bjóða, Machu Picchu eitt af því magnaðasta sem við höfum séð, ferðamannaparadísin Tæland stóð fyrir sínu þar sem vika í köfunarskóla var toppurinn, �??surfskólinn�?? á Bali og svo var Indland einstaklega heillandi land þar sem Holi hátíðin stóð upp úr. Við fórum líka í fallhlífarstökk og teygjustökk í Suður Afríku sem var ekkert smá skemmtilegt.�??
Vegabréfsáritunin útrunnin í Indlandi
Lentu þið einhverntíman í einhverjum vandræðum í ferðinni? �??Við lentum tvisvar í vandræðum með vegabréfsáritanirnar okkar. Fyrst var það í Tælandi þegar mistök höfðu verið gerð með ártal og áritunin var í rauninni útrunnin áður en hún var gefin út. Svo var það á Indlandi að við höfðum misskilið leyfið okkar og það rann út fjórum dögum eftir að við komum inn í landið. �?á þurftum við að fara í sendiráðið þeirra og bókstaflega væla út framlengingu. Annars vorum við mjög heppnar og lentum ekki í miklum vandræðum, vorum til dæmis aldrei rændar og lentum aldrei á spítala eins og flestir sem fara í svona reisur gera yfirleitt,�?? sagði Guðrún Svanlaug og hló.
Lentu þið í einhverjum ævintýrum? �??Við lentum í mörgum ævintýrum en fæst þeirra eru prenthæf,�?? sagði �?orgerður Anna og brosti til Guðrúnar Svanlaugar. �??�?að sem mér dettur í hug núna er þegar við tókum strætó yfir landamærin frá Argentínu til Brasilíu við Iguazu fossana og fórum út á síðustu stoppistöðinni og vissum ekkert hvernig við áttum að komast á hostelið okkar þegar það kom til okkar maður og bauð okkur leigubíl. Við tókum því að sjálfsögðu en svo kom í ljós að þetta voru tveir mótorhjólataxar og við þurftum að sitja aftan á með bakpokana á okkur. Í eitt skiptið á leiðinni beygði ökumaðurinn hennar �?orgerðar en ekki hennar Guðrúnar og við vorum báðar farnar að biðja bænirnar okkar en allt fór vel og við enduðum á sama stað. �?egar við fórum að kafa á Bali þá rákumst við á þriggja metra langan hákarl sem synti fram hjá okkur og stoppaði og leit á okkur aðeins nokkra metra í burtu og við urðum stjarfar af hræðslu og gripum í hvora aðra. En hann hélt svo bara sinnar leiðar, enda ekki kjötæta.,�?? sagði �?orgerður Anna.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar landa í Grindavík
Sterk uppbygging og skýr framtíðarsýn
Skortur á félagslegum tengslum er dauðans alvara
Síðasta Aglow samvera vetrarins
Landeyjahöfn orðin fær á háflóði
Heimsklassa matreiðslumeistarar frá Íslandi á MATEY
Úrslitaeinvígið: Mæta Val á heimavelli
Herjólfur III í prufusiglingu á miðvikudag
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.