Vísað er til bókunar fulltrúa sjálfstæðismanna á fundinum 28. desember þar sem þeir telja að einn af bæjarfulltrúum V-listans hafi verið óhæfur. Forseti hafi svo þegar á reyndi leyft honum að sitja fundinn. Forseti, Gunnlaugur Grettisson, hafi hins vegar látið hafa eftir sér sér í fjölmiðlum að hann teldi viðkomandi bæjarfulltrúa hafa verið á gráu svæði. Í greinargerð V-lista var lögð áhersla á að bæjarfulltrúinn, Hjörtur Kristjánsson, hafi engin tengsl við hvorugt fyrirtækið sem um var rætt, Nautilus eða Hressó.
Líka var bent á að í fjölmiðlum hafði komið fram athugasemd um hvort það sama ætti ekki við einn fulltrúa sjálfstæðismanna, Elliða Vignisson bæjarstjóra, en faðir hans Vignir Guðnason er forstöðumaður Íþróttamiðstöðvarinnar.
�?Bæjarfulltrúar V-listans ætla ekki annað en að bæjarfulltrúar bæði V- og D-listans hafi tekið afstöðu í málinu byggða á málefnalegum grunni og með hagsmuni bæjarfélagsins í huga. Hins vegar telja þeir rétt fyrir alla aðila að öllum vafa verði eytt og fenginn verði úrskurður félagsmálaráðuneytisins um hæfi bæjarfulltrúa í máli þessu,�? segir í greinargerð minnihluta V-lista.
Elliði svaraði með eftirfarandi bókun:
�?Harma það að bæjarfulltrúar V-lista skulu með jafn ósmekklegum hætti blanda störfum föður míns, sem verið hefur starfsmaður hjá Vestmannaeyjabæ í um 40 ár inn í pólitíska umræðu til þess eins að koma pólitísku höggi á mig. Látið er í veðri vaka að faðir minn hafi haft annarlega hagsmuni í umræddu máli og það gert mig vanhæfan til að fjalla um málið. Lægra geta bæjarfulltrúar vart lagst. �?g læt Eyjamenn sem þekkja störf föður míns í þágu sveitarfélagsins seinustu áratugi að dæma um hversu smekkleg slík umræða er og vík af fundi á meðan málið er rætt.�?
Í bókun minnihlutans segir m.a.
�?Varðandi hugsanlegt vanhæfi bæjarstjóra við afgreiðslu á samningi við Nautilus vegna fjölskyldutengsla við forstöðumann Íþróttamiðstöðvar þá á það að mati meirihlutans ekki við nein rök að styðjast enda hreyfði enginn bæjarfulltrúi við slíku á umræddum bæjarstjórnarfundi. Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar sem hefur yfir 40 ára starfsreynslu hjá Vestmannaeyjabæ hefur sjálfur enga persónulega hagsmuni af því að bærinn semji við Nautilus og því eru aðdróttanir um vanhæfi bæjarstjóra með öllu tilhæfulausar.�?
Tillaga sjálfstæðismanna um að vísa tillögunni frá var síðan samþykkt en V-listinn átti síðustu bókunina: �?Fulltrúar V-listans skilja ekki hvernig hægt er, að verið sé að blanda störfum forstöðumanns Íþróttamiðstöðvarinnar í málið eða koma pólitísku höggi á bæjarfulltrúann. Aldrei hafa fulltrúar V-listans efast um hæfi bæjarfulltrúans heldur er tilgangurinn að hreinsa bæjarfulltrúa V-listans af áburði um vanhæfi og af því tekinn allur vafi.�?





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.