Yfirlýsing frá þjóðhátíðarnefnd
ÍBV Íþróttafélag skipuleggur og heldur �?jóðhátíð Vestmannaeyja og gerir allt sem stendur í valdi félagsins til að tryggja öryggi hátíðargesta. Félagið hefur hins vegar ekkert ákvörðunarvald um það hvenær eða með hvaða hætti lögregluyfirvöld kjósa að segja frá hugsanlegum lögbrotum sem framin eru á hátíðarsvæðinu.
Meðal þess sem gert hefur verið á undanförnum árum til að auka öryggi er eftirfarandi:
  • Fjölgað öryggismyndavélum á hverju ári frá 2012
  • Fjölgað í gæsluliðinu á �?jóðhátíð
  • Kynjaskipt salernum
  • Bleiki fílinn var stofnaður fyrir 5 árum en hann er forvarnarhópur vegna kynferðisbrota
  • Félagið er með áfallateymi á hátíðarsvæðinu, skipað fagfólki, sem vinnur með lögreglu og heilsugæslu
Við �?jóðhátíðarhaldið er í algjörum forgangi að tryggja öryggi gesta, einkum og sér í lagi gagnvart kynferðisbrotum og öðru ofbeldi. �?að á aldrei að fela þessi brot; alltaf að ræða þau og alltaf að snúa sökinni og skömminni að gerandanum. Kynferðisofbeldi er aldrei þolandanum eða umhvefinu að kenna; alltaf gerandanum einum.
Við treystum því að vinnubrögð lögreglu í hverju tilviki ráðist af því meginmarkmiði að hlífa þolandanum og koma höndum yfir gerandann.
ÍBV Íþróttafélag og �?jóðhátíðarnefnd vill vinna með öllum til að tryggja ofangreind markmið, þar með talið þeim góðu listamönnum sem nú hafa stigið fram og vilja leggja hönd á plóginn. Einnig hefur verið ákveðið að bjóða Stígamótum og Neyðarmóttöku Landsspítalans að koma og taka út forvarnastarfið, gæsluna og viðbragðsteymið á hátíðinni. Vonandi verður það til þess að gera góða gæslu og gott viðbragð enn betra.
�?jóðhátíðarnefnd,
Auðbjörg Halla Jóhannsdóttir
Birgir Guðjónsson
Dóra Björk Gunnarsdóttir
Elías Árni Jónsson
Hörður Orri Grettisson
Jónas Guðbjörn Jónsson

Nýjustu fréttir

Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA
Fékk plássið þegar auminginn úr Reykjavík gafst upp
Minnisvarði um botnlausa sýndarþörf Eyjamanna brátt vígður
Listaverk Ólafs Elíassonar komið á sinn stað
Hingað og þangað um Heimaey
Ágúst Þór stýrir brekkusöngnum
Skákmeistarinn krýndur á sunnudag
Árshátíð FÍV haldin með pompi og prakt
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.