12 kærur vegna brot á umferðarlögum
Lögreglan hafði í ýmis horn að líta í liðinni viku án þess að um alvarlega mál hafi verið að ræða. Helgin gekk að mestu áfallalaust fyrir utan einn einstakling sem gisti fangageymslu lögreglu.
�?ann 3. febrúar sl. var lögreglu tilkynnt um dreng á léttu bifhjóli þar sem hann var að aka eftir Strandvegi v/Krónuna. Aksturinn var stöðvaður skömmu síðar af lögreglu og viðurkenndi drengurninn að hafa tekið hjólið ófrjálsri hendi. Máli telst upplýst.
�?ann 6. febrúar sl. var tilkynnt um þjófnað á áfengi frá 900 Grillhús og beindust böndin fljótlega að ákveðnum aðila. Viðurkenndi hann að hafa tekið áfengið og skilaði því til réttra eigenda í viðurvist lögreglu. Málið telst upplýst.
Einn fékk að gista fangageymslu lögreglu um liðna helgi en sá hafði verið til óþurftar á einu af veitingahúsum bæjarins.
�?rjú umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í vikunni og má rekja þau til hálku sem er búin að vera á götum bæjarins að undanförnu. Engin slys urðu á fólki í þessum óhöppum, en lítisháttar tjón varð á ökutækjum.
Alls liggja fyrir 12 kærur vegna brota á umferðarlögum eftir vikuna. Í einu tilviki var ökumaður stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. �?á liggja fyrir 10 kærur vegna ólöglegrar lagninga ökutækja og ein kæra vegna aksturs án tilskilinna réttinda.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.