Þjóðhátíðargestir byrjaðir að streyma til eyja.

Þó svo að þjóðhátíðin byrji ekki formlega fyrr en á föstudag þá eru þjóðhátíðargestir byrjaðir að streyma til eyja. Í dag komu tvær Fokker 50 sæta vélar frá Reykjavíkur með farþegar frá Flugfélagi Íslands, Herjólfur siglir með um 800 farþega í dag og Flugfélag Vestmannaeyja er með loftbrú milli eyja og bakka.

Hjá Hannesi Kristni Sigurðssyni hjá Flugfélagi Íslands fengust þær upplýsingar að um 1000 farþegar eiga bókað til eyja frá deginum í dag og fram á sunnudag og á mánudaginn er stefnt að því að koma þeim fjölda heim á ný.
Á morgun verða fjórar vélar, tíu vélar á föstudag, tvær á laugardag og fjórar vélar á sunnudag. Örfá sæti eru laus til eyja á föstudag og sunnudag en upp pantað er frá eyjum á mánudag.
Þegar örtröðin verður sem mest hjá starfsmönnum Flugfélagsins þá má gera ráð fyrir því að fimmtán mínútur verði milli véla en að meðaltali á föstudaginn kemur vél á klukkutímafresti. Hannes Kristinn sagðist vera með einvalalið af hraustum peyjum á þessari þjóðhátíð í vinnu og væri þeir með sjö til átta starfsmenn eftir umferð flugvéla.

 

Nýjustu fréttir

Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Norlandair með lægsta tilboð í flug til Eyja
„Hörkufiskirí”
Gular viðvaranir í öllum landshlutum
Viðburðaríkir og skemmtilegir fjölgreindarleikar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.