Vilja slá skjaldborg um Sparisjóð Vestmannaeyja

Bæjarfulltrúar í bæjarstjórn Vestmannaeyja vilja koma í veg fyrir að Sparisjóður Vestmannaeyja verði yfirtekinn líkt og gerðist í Hafnarfirði. Bæjarstjórnin heitir á stjórn og stofnfjáreigendur að standa saman og sækist eftir að kaupa stofnfjárbréf til að gæta að hagsmunum bæjarfélagsins.

„Ýmsir hafa verið að ásælast stofnfjárbréfin,” segir Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyja. „Við vitum til þess að það hefur verið auglýst eftir stofnfjárbréfum til kaups. Í því sambandi eru nefndar háar fjárhæðir, allt að fjörutíu milljónum króna. Við viljum vara við þessu því miðað við þessa fjárhæð er verið að ásælast völd yfir varasjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja.”

Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er varasjóðurinn metinn á allt að 2,5 milljarða króna. Hins vegar er framlag sjötíu stofnfjáreigenda til sjóðsins einungis tæpar fjórar milljónir króna í formi keyptra stofnfjárbréfa. Uppreiknað virði hvers stofnfjárbréfs er um 55 þúsund krónur. Samkvæmt þessu gæti stofnfjáreigandi, sem keypti stofnfjárbréf á 55 þúsund krónur, selt bréfið á fjörutíu milljónir króna.

„Bæjarstjórn Vestmannaeyja heitir á stjórn og stofnfjáreigendur Sparisjóðsins að standa saman og minnir jafnframt á að þeir eru trúnaðarmenn sjóðsins,” segir í ályktun sem var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á fundi bæjarstjórnar í fyrradag. Þar lagði Elliði einnig til að bærinn keypti allt að fimm prósent stofnfjárbréfa Sparisjóðsins. Það yrði gert á genginu einn. Verður það mál tekið fyrir í bæjarráði eftir helgi.

„Það yrði táknrænn gjörningur,” segir Elliði. „Við erum meðvituð um samfélagslegt mikilvægi Sparisjóðs Vestmannaeyja. Okkar aðkoma að þessu máli er eðlileg hagsmunagæsla fyrir íbúa samfélagsins hér.” Hann segir að það hafi aldrei verið hugmyndin með sölu stofnfjárbréfa að eigendur þeirra myndu leysa út mikinn hagnað af bréfum sínum.

„Þetta er í takt við það sem stjórnin hefur lagt áherslu á,” segir Arnar Sigmundsson varaformaður stjórnar Sparisjóðs Vestmannaeyja. Hann segir að stjórnin hafi ekki afgreitt neina sölu á stofnfjárbréfum. Það muni ekki gerast næstu mánuði á meðan verið sé að auka stofnfé um 350 milljónir króna. Í þeirri hlutafjáraukningu hafi stofnfjáreigendur forkaupsrétt. Til þess að bærinn geti keypt verði einhver að falla frá forkaupsrétti sínum eða þá að selja bænum síðar.

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.