Þrettán íkveikjur óupplýstar í Vestmannaeyjum

Íbúar í Vestmannaeyjum hugsa til þess með hryllingi ef að íkveikjufaraldurinn sem kom upp í Vestmanneyjum um jólin í fyrra, endurtaki sig í ár. Í DV í dag kemur fram að alls séu þrettán íkveikjumál óupplýst sem komið hafa upp í Vestmannaeyjum á síðustu sjö árum, en upphaf íkveikjuhrinunnar megi rekja til elds í fiskvinnsluhúsi Ísfélagsins.  Í desember á síðasta ári hafi þó fjögur slík tilfelli komið upp í Vestmannaeyjabæ, en enginn hafi enn verið handtekinn vegna þeirra.

Á miðvikudaginn í síðustu viku kom eldur upp í íbúð Aðalheiðar Sveinsdóttur Waage. Hún býr á fyrstu hæð í þriggja hæða fjölbýli. Kona, sem var íbúi á annarri hæð, hefur verið handtekin vegna málsins, grunuð um að hafa kveikt í húsinu. Í DV í dag er rætt við Aðalheiði vegna málsins, þar sem hún segir frá því hversu vel hún slapp frá atvikinu. T tímasetningin hafi varla mátt vera betri, en eldurinn kom upp klukkan fjögur að degi til. „Ég þakka guði fyrir að allir komust heilir út úr þessu sem var fyrir mestu,” segir Aðalheiður.

Í helgarblaði DV, sem kemur út á morgun, verður ítarlega farið yfir þær íkveikjur sem hafa komið upp í Vestmannaeyjum á síðustu sjö árum.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði heima í einvíginu gegn Haukum
Óþolandi óvissa með samgöngur til Vestmannaeyja
Fyrirliðinn lék sinn 300. deildarleik
Baldur leysir Herjólf af
Eyjafréttir standa við „samsuðuna“
Vonast til að dýpkun hefjist á fimmtudag
Ung eyjamær sigraði upplestrarkeppnina
Fiskeldið á fleygiferð í byrjun árs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.