Ekki slær á vindinn.

Það er enn þá sama fárviðrið hérna hjá okkur og miklar hviður sem koma niður fjöllin. Við liggjum nokkur hundruð metra frá fjörunni og samt nær að rífa upp sjó, en hann er samt mest hvítfryssandi. Það er varla óhætt að fara út og ef eitthvað fer að losna þá verður það bara að fá að losna. Mér finnst aðeins hafa bætt í þetta frá í morgun og nötrar brúin enn meira nú en þá. Það er sko ekki undir 30 metrunum hér og eru verstu hviðurnar mjög öflugar og ekki vildi ég vera úti á dekki í þeim.

Það fer samt ekkert illa um okkur hér, kokkurinn var með Norskt hreindýr í hádeginu svona rétt til að minna okkur á að jólin eru á næsta leiti. í meðlæti voru meðal annars brúnaðar kartöflur, soðið grænmeti og gular baunir. Auk þessa var hann með villibráðarsósu sem bragðaðist með afbrigðum vel og sagði hann að galdurinn væri að nota rétt hlutföll ? Ég held reyndar að þessi sósa hafi bara verið heppni og ekkert haft með hæfileika að gera. Kokkurinn virðist nefnilega alltaf standa á gati þegar maður spyr hvernig sósa sé með matnum. En hann veit hvað kokteilsósa er og er það mikill kostur í hans fari. En Himmi er samt drullu flottur og þykir mér alveg ofboðslega vænt um hann og er hann mér sem frændi eða bróðir, jafnvel sem systir. Hann er byrjaður að baka rúgbrauðið sem á að vera með saltfisknum í hádeginu á morgun og einnig byrjaður að hnoða degið í flatbökuna fyrir annað kvöld. Þá ætlum við Himmi að hafa það gott, borða góðan mat og eftirrétt og horfa svo á hinn stórskemmtilega sjónvarpsþátt Laugardagslögin. Það sést best á þessum þáttum hversu mikill metnaður er í innlendri dagskrárgerð á Rúv. Og komast aðrir miðlar eins og Stöð 2 ekki með tærnar þar sem Rúv er með hælana……. Enda með alla þjóðina í skylduáskrift auk þess að vera á fjárlögum hjá hinu opinbera. Eru þið ekki sammála ?

www.123.is/tobbivilla

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.